Það fer nú að styttast í fyrstu gotin hans RW-19 SG1 SG61 Lider von Panoniansee og erum við vægast sagt að kafna úr spenningi. Lider er glæsilegur hundur með yfirburða ættbók, heilbrigði og árangur sem enginn annar á landinu getur státað sig af. Pabbi hans Lider hann VA1 Dingo Di Casa Mary vann núna fyrr í sumar enn einn siegershow titil, hann varð VA1 á Breska siegershow en hann var seldur þangað fyrr á árinu. Er hann orðinn einn eftirsóttasti ræktunarhundur í heiminum í dag og afkvæmin hans eru algerlega að slá í gegn. Q- gotið undan meistaranum ISShCh Gjósku Ruslönu-Myrru er væntanlegt um 17. júlí nk. og er hún orðin virkilega sver um sig. Myrra er eins og mamma hennar CIB ISCh RW-14 Gjósku Mylla búin að sanna sig algerlega í ræktun, bæði hvað varðar útlit, vinnueiginleika, heilbrigði og frábæra heimilshunda. Við teljum að Lider muni ekki bregðast væntingum okkar í ræktun og hvað þá með svona ofur bombu mömmu. X-gotið undan stjórstjörnunni ISShCh ISJCh RW-19 Gjósku Valkyrju er svo væntanlegt fyrstu helgina í ágúst. Valkyrja, eða Vera eins og hún er kölluð er alger stjarna. Hún er orðin bæði íslenskur sýningar meistari og ungliðameistari, er með 2 Alþjóðleg meistarastig, Reykjavík winner 2019 og eitt Norðurlanda meistarastig. Hún var Besti hundur tegundar og Besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni á síðustu sýningu HRFÍ. Vera er í frábærri stærð, er með A/A mjaðmir og olnboga, virkilega geðgóð, glæsileg á litinn og bara ef maður talar hreint út einn fallegasti schäfer sem fæðst hefur á landinu. Við búumst við miklu úr þessari pörun og vonum að Vera feti í fótspor ömmu sinnar og mömmu í ræktun. RW-19 SG1 SG61 Lider von Panoniansee BOB og BIG2 - Gerast þeir mikið fallegri RW-19 SG1 SG61 Lider von Panoniansee BOB og BIG2 - frábært reach og drive RW-19 SG1 SG61 Lider von Panoniansee BOB og BIG2 - hleypur í annað sæti í tegundarhópi 1 ISShCh Gjósku Ruslana-Myrra ofur ræktunartík, enda glæsileg með meiru ISShCh ISJCh RW-19 Gjósku Valkyrja hvolpur heima hjá sér í eyjum ISShCh ISJCh RW-19 Gjósku Valkyrja á sýningarþjálfun VA1 VA10 Dingo di Casa Mary pabbi Lider sigurvegari Ítalska og Breska siegershow VA1 VA10 Dingo di Casa Mary, engar öfgar, bara rétt bygging á allan hátt VA1 VA10 Dingo di Casa Mary, glæsilegt höfuð, eyru, feldur og litur
0 Comments
Tvöföld sumarsýning HRFÍ fór fram helgina 8.-9. júní sl. og gekk Gjósku hundunum vel að vanda.
Nýji prinsinn okkar Hildar, hann Lider, kom sá og sigraði á laugardeginum. Hann bætti við sig RW-19 titili, fékk Íslenskt meistarastig, Norðurlanda meistarastig og varð svo annar í tegundarhópi 1. Drottningin hún Una Buna bætti við sig öðrum RW titili og fékk sitt síðasta Norðurlanda meistarastig og er því fyrsti schaferinn á landinu til þess að verða Norðurlanda meistari. Mylla gamla mætti í fyrsta sinn í öldungaflokk þar sem hún sló í gegn og fékk 2 öldungameistarastig og varð 4. Besti öldungur sýningar báða dagana, ásamt því að eiga besta afkvæmahóp tegundar og 2. besta afkvæmahóp sýningar báða dagana. Ungliðameistarinn hún Gjósku Valkyrja kom í fyrsta sinn í opinn flokk og kláraði íslenska meistaratitilinn sinn, fékk RW-19 titil og varð Besti hundur tegundar. Einnig áttum við besta ræktunarhóp tegundar í síðhærðum schafer báða dagana og á laugardeginum varð snögghærði hópurinn okkar besti ræktunarhópur tegundar og Besti ræktunarhópur sýningar. Leó dæturnar Ölfus Dýva Kæja og ISTRCh OB-II OB-I Forynju Aska gerðu það líka gott, en Kæja fékk heiðurshring frá dómaranum sem bað alla viðstadda um að klappa fyrir þessari flottu tík. Og hlýðni og spora meistarinn Aska varð 4. besta tík fyrri daginn og 2. besta tík seinni daginn með Íslenskt meistarastig. Helstu úrslit voru þessi: RW-19 og NKU sýning snögghærðir ISJCh Ivan von Arlett - exc, 2. sæti unghundafl. RW-19 Lider von Panoniansee - exc, 1. sæti unghundafl. meistaraefni, Besti rakki tegundar, Íslenskt meistarastig, Norðurlanda meistarastig, Reykjavík Winner 2019, Besti hundur tegundar, 2. sæti Tegundarhópi 1 ISCh Gjósku Tindur - exc, 2. sæti meistarafl. meistaraefni, 4. Besti rakki tegundar Gjósku Rispa - vg, 2. sæti opinn fl. Gjósku Vissa - g, 4. sæti opinn fl. ISTrCh OB-II OB-I Forynju Aska - exc, 1. sæti vinnuhundafl. meistaraefni, 4. Besta tík tegundar NORDUCH ISShCh RW-19 RW-18 Gjósku Una Buna - exc, 1. sæti meistarafl. meistaraefni, Besta tík tegundar, Norðurlanda meistarastig, Reykjavík Winner 2019, Besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni CIB ISCh RW-14 Gjósku Mylla - exc, 1. sæti öldungafl. meistaraefni, Öldunga meistarastig, Besti öldungur tegundar, 4. Besti öldungur sýningar, Besti afkvæmahópur tegundar, 2. Besti afkvæmahópur sýningar Gjósku ræktun - 1. sæti, Heiðursverðlaun, Besti ræktunarhópur tegundar, BESTI RÆKTUNARHÓPUR SÝNINGAR síðhærðir CIE ISShCh NLM RW-15 Gjósku Rökkvi-Þór - exc, 2. sæti meistarafl. meistaraefni, 2. Besti rakki tegundar, vara-Norðurlanda meistarastig ISJCh Gjósku www. Píla.is - exc, 1. sæti unghundafl. meistaraefni, 2. Besta tík tegundar, vara-Norðurlanda meistarastig ISJCh Gjósku Vænting - exc, 2. sæti opinn fl. ISShCh ISJCh RW-19 Gjósku Valkyrja - exc, 1. sæti opinn fl. meistaraefni, Besta tík tegundar, Íslenskt meistarastig, Norðurlanda meistarastig, Reykjavík Winner 2019, Besti hundur tegundar Gjósku ræktun - 1. sæti, Heiðursverðlaun, Besti ræktunarhópur tegundar Alþjóðleg sýning snögghærðir ISJCh Ivan von Arlett - exc, 1. sæti unghundafl. meistaraefni, 3. Besti rakki tegundar RW-19 Lider von Panoniansee - exc, 2. sæti unghundafl. Gjósku Uggi - exc, 5. sæti opinn fl. ISCh Gjósku Tindur - exc, 2. sæti meistarafl. meistaraefni Gjósku Rispa - exc, 2. sæti opinn fl. meistaraefni Gjósku Vissa - exc, 1. sæti opinn fl. meistaraefni, 3. Besta tík tegundar Ölfus Dýva Kæja - exc, 4. sæti opinn fl. ISTrCh OB-II OB-I Forynju Aska - exc, 1. sæti vinnuhundafl. meistaraefni, 2. Besta tík tegundar, Íslenskt meistarastig NORDUCH ISShCh RW-19 RW-18 Gjósku Una Buna - exc, 2. sæti meistarafl. CIB ISCh RW-14 Gjósku Mylla - exc, 1. sæti öldungafl. meistaraefni, 4. Besta tík tegundar, Öldunga meistarastig, Besti öldungur tegundar, 4. Besti öldungur sýningar, Besti afkvæmahópur tegundar, 2. Besti afkvæmahópur sýningar Gjósku ræktun - 2. sæti, Heiðursverðlaun síðhærðir CIE ISShCh NLM RW-15 Gjósku Rökkvi-Þór - exc, 2. sæti meistarafl. meistaraefni, 2. Besti rakki tegundar, vara-Alþjóðlegt meistarastig ISJCh Gjósku www. Píla.is - exc, 1. sæti unghundafl. meistaraefni, 5. Besta tík tegundar ISJCh Gjósku Vænting - exc, 4. sæti opinn fl. meistaraefni, 4. Besta tík tegundar Gjósku Snjó-Blondy - exc, 2. sæti opinn fl. meistaraefni, 2. Besta tík tegundar, Íslenskt meistarastig, vara-Alþjóðlegt meistarastig ISShCh ISJCh RW-19 Gjósku Valkyrja - exc, 1. sæti opinn fl. meistaraefni, Besta tík tegundar, Íslenskt meistarastig, Alþjóðlegt meistarastig, Besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni Gjósku ræktun - 1. sæti, Heiðursverðlaun, Besti ræktunarhópur tegundar Viljum við þakka öllum eigendum og sýnendum fyrir frábæra sýningu og ennþá betri félagsskap. Hlökkum strax til næstu sýningar sem verður helgina 24.-25. ágúst. Þá er stórglæsilegri júní sýningu HRFÍ lokið og eignuðumst við 2 nýja meistara og 3 Reykjavík Winnera.
Ofur meistarinn hún Gjósku Una Buna bætti við sig tvemur titlum um helgina, en hún varð besta tík tegundar, Reykjavík Winner 2019 og fékk sitt síðasta Norðurlanda meistarastig. Hún er því fyrsti schäfer landsins til þess að verða Norðurlanda meistari NORDUCH, hún er því núna NORDUCH ISShCh RW-19 RW-18 Gjósku Una Buna. Ótrúlegur árangur hjá þessari glæsilegu Leó og Myllu dóttur okkar. Þá var það nýji ofur gaurinn okkar hann Lider von Panoniansee sem stal senunni, hann varð besti rakki tegundar með Íslenskt og Norðurlanda meistarastig, varð Reykjavík Winner 2019, besti hundur tegundar og annar í tegundarhópi 1 á eftir aussie hundinum sem varð best in show. Gætum við ekki verið ánægðari með þennan ofur hund sem við ásamt Hildi hjá Forynju ræktun eigum. Loðna drottningin hun Gjosku Valkyrja mætti einnig sterk til leiks, en vika er síðan að hún var pöruð við Lider og vonandi eru hvolpar undan þessu glæsipari væntanlegir í byrjun ágúst. Valkyrja varð besta tík tegundar á laugardeginum og fékk þá sitt síðasta íslenska meistarastig og er hún því núna orðin Íslenskur sýningarmeistari, hún hlaut einnig sitt fyrsra Norðurlanda meistarastig og varð Reykjavík Winner 2019 og Besti hundur tegundar - Hvílíkur dagur!! Daginn eftir varð hún einnig besta tík tegundar og hlaut þá sitt annað Alþjóðlega meistarastig. ISShCh RW-19 ISJCh Gjósku Valkyrja er upprennandi stjarna. Sýningin gekk ofboðslega vel hjá Gjósku og Forynju ræktun og koma myndir og úrslit frá sýningunni á næstu dögum. Fyrsta sporapróf ársins var haldið á uppstigningardaginn 30. maí í blíðskaparveðri. Í fyrsta sinn á Íslandi tók síðhærður schäfer þátt í sporaprófi, en ISJCh Gjósku Vænting lauk þar spori 1 með glæsilegum árangri 85. stig af 100 mögulegum. Kæja eins og hun er kölluð er því fyrsti síðhærði schaferinn á landinu sem uppfyllir kröfur til þess að mæta í vinnuhundaflokk, er hún einnig með 2 íslensk meistarastig svo þegar að hún hlýtur sitt 3. og síðasta þá verður hún fyrsti síðhærði schäfer landsins til þess að hljóta titilinn Íslenskur meistari ISCh.
Hún er einnig fyrsti síðhærði hundur landsins sem mætir í hlýðni 1 próf og hlýtur silfurmerki HRFÍ, við erum svo stoltar af Tinnu eiganda hennar sem þjálfar og hugsar um hana af einstakri list. Til hamingju Tinna og Kæja, A/A mjaðmir og olnbogar, Ungliðameistari, 2 Íslensk meistarastig, Bronsmerki HRFÍ, 2x fyrsta einkun í hlýðni 1, Silfurmerki HRFÍ plús það að vera báðar yndislegar og gullfallegar. Sama dag var einnig haldið hlýðni próf, en þar mættu sterk til leiks Leó og Ynju börnin Forynju Aston og Forynju Aska. Aston mætti í fyrsta sinn í hlýðni brons með eiganda sínum henni Heiðrúnu þar sem hann að sjálfsögðu rúllaði því upp, hlaut Bronsmerki HRFÍ og fyrsta sæti í prófinu. Aska mætti í 3. sinn í hlýðni 2 og í 3. sinn hlaut hún fyrstu einkun og bætti þá við sig OB-II hlýðni 2 meistaratitili. Seinna um daginn mætti Aska einnig í spor 3 og eins og fyrri daginn rúllaði hún því upp með glæsilega fyrstu einkun. Eftir daginn bætti hún því við sig, ásamt OB-II titlinum, ISTrCh eða sporameistari og er hún yngsti schäfer landsins til þess að hljóta þann titil. Erum við virkilega stoltar af þessum glæsilegu Leó afkvæmum sem eru bæði heilbrigð, falleg og með frábært vinnueðli. Undirbúningur fyrir tvöföldu júní sýningu HRFÍ er í fullum gangi og æfum við oft í viku í sambland við annarskonar þjálfun. Tókum við nokkrar myndir á síðustu þjálfun, birtan var alveg búin að yfirgefa okkur þegar að við vorum að hlaupa með Lider svo að við urðum að vinna þær aðeins furðulega svo að eitthvað sæist af fallega prinsinum okkar. Hundarnir á myndunum eru ISJCh Ivan von Arlett, ISCh PLJCh PLJW-16 Emir vive Vanette, Forynju Aston, OB-I Forynju Aska, ISJCh Gjósku Vænting, ISJCh Gjósku www. Píla.is, ISJCh Gjósku Valkyrja og SG1 Lider von Panoniansee.
Norski gesturinn okkar varð 3 ára í dag, 12. maí, á mæðradaginn. Fær Whims litli sérstök knús og klöpp í tilefni dagsins og extra dekur með kvöldmatnum í kvöld.
Whims er aldeilis búinn að gera það gott á þessum 3 árum, en hann er orðinn meisari í 3 löndum og vann BEST IN SHOW á fyrstu sýningu ársins hér á Íslandi. Við sendum knús yfir hafið á fallegu systkini hans og þökkum Leif og Toril enn og aftur fyrir lánið á þessum stórglæsilega hundi. Sólin skein og tveggjastafa hitatölur fóru vel með bæði hunda og menn á alþjóðlega baráttudegi verkalýðsins, 1. maí í gær. Við nýttum daginn þó í hlýðnipróf og sýningarþjálfanir og má segja að árangurinn hafi verið hreint út sagt magnaður. Litla stjarnan hún ISJCh Gjósku Vænting, fór í hlýðni 1 og fékk þar sína aðra fyrstu einkun, eða yfir 160 stig af 200. En Kæja var nú ekkert að slora við þetta og náði hún hvorki meira nér minna en 192.5 stig sem er að við best vitum hæsta einkun sem schäfer hefur hlotið í H1. Fyrir var það ofur vinnuhundurinn Leó dóttirin OB-I Forynju Aska sem var með 190.5 stig. Hún mætti einnig í annað sinn í Hlýðni 2 og í annað sinn hlaut hún fyrstu einkun og á því einungis 1 skipti eftir til þess að fá titilinn OB-II. Hildur skellti sér líka með unga prinsinn hann ISJCh Ivan von Arlett í hlýðni brons í fyrsta sinn og þar uppskar hann fyrsta sæti, fyrstu einkun og bronsmerki HRFÍ. Við erum ekkert smá stoltar af bæði Hildi og Tinnu en þær hafa sko með metnaði og vinnu unnið sér inn fyrir hverri einustu kommu sem þær hljóta í einkun. Eftir hlýðniprófið var dagurinn nýttur í útreiðar og enduðum við svo kvöldið á sýningarþjálfun á BIS ISCh N.UCH DKCH Welincha's Whimpy og nýja prinsinum SG1 Lider von Panoniansee, en það styttist í næstu sýningu sem verður 8. og 9. júní nk. frá v. ISJCh Ivan von Arlett 1. sæti HBrons, 163.5 stig, Bronsmerki HRFÍ - OB-I Forynju Aska 1. sæti H2, 162.5 stig, fyrsta einkun - OB-I OB-II Vonzu's Asynja 1. sæti H3, 280 stig, fyrsta einkun - ISJCh Gjósku Vænting 3. sæti H1, 192.5 stig, fyrsta einkun. ISJCh Gjósku Vænting að liggja á göngu, hún hefur nú hlotið fyrstu einkun í Hlýðni 1 tvisvar sinnum og þarf því að ná því einu sinni enn til þess að verða hlýðni 1 meistari OB-I. Guðdómlegi unglingurinn hann SG1 Lider von Panoniansee í sýningarþjálfun
Lider litli aðlagast vel og smell passar inní hópinn. Við fórum í smá viðring í gær á sumardaginn fyrsta til þess að fagna sumrinu. Við förum nú bara rólega af stað, en það vantar alls ekki kraftinn og stuðið í gaurinn.
Við tókum enn einn góðan þjálfunar dag, en páskadagur var nýttur í sýningar- hlýðni- og sporaþjálfun. ISJCH Ivan von Arlett, ISJCH Gjósku Vænting, ISJCH Gjósku www.Píla. is og OB-I Forynju Aska tóku spor í heiðinni og náðum við myndum af öllum nema Ivani litla. Svo tókum við sýningarþjálfun á Ivan og Pílu og æfðum þau fyrir hlýðni brons. Páskarnir hjá okkur vinkonunum eru sannkallaðir hundapáskar.
Föstudagurinn langi var vel nýttur hjá okkur hjá Gjósku og Forynju ræktun, en dagurinn fór í heljarinnar spora- og sýningarþjálfun ásamt löngum viðringi í heiðinni. Viljum við óska öllum hundaeigendum og öðrum vinum gleðilegra páska og hlökkum við til sumarsins með ykkur.
Vinur okkar hann ISJCh Ivan von Arlett varð 18 mánaða núna fyrr í mánuðinum og fengum við hann lánaðan frá Hildi í fjöruferð í tilefni þess. Hann naut sín í botn með prinsessu hópnum okkar og smelltum við nokkrum myndum af þeim.
Þá er ofurprinsinn hann Lider kominn til landsins og verður næstu 28 dagana í dekri hjá vinum okkar í höfnum. Lider er af framúrskarandi evrópskum ættum, laus við öll heilsufarsvandamál og eins og allir hundar sem við flytjum inn til landsins með gríðarlega flottan sýningarárangur hafi þeir tekið þátt í sýningum.
Lider hefur náð bestum árangri á siegershow sýningum af þeim hundum sem hafa komið hingað til lands, en hefur hann sigrað ungliðaflokk í 2 löndum. Áhugavert verður því að fylgjast með áframhaldandi velgengni hans hér á landi. Lider er í eigu okkar Gjóskuræktunar og Hildi með Foryjuræktun svo mun hann koma til með að eiga afkvæmi hjá okkur báðum og styrkja og bæta okkar flottu ræktanir. Þá er sýningarárið 2019 hafið og ekki er annað hægt að segja en að Team Gjósku og Forynju hafi farið sátt frá fyrstu sýningu ársins.
Ofur prinsinn hann Welincha's Whimpy kom sá og sigraði á sýningunni aðeins rúmum 2 vikum úr einangrun. Hann stal senunni fyrst í tegundinni þar sem hann varð besti rakki tegundar með Íslenskt, Alþjóðlegt og Norðurljósa meistarastig og kláraði þar með Íslenska meistaratitilinn sinn. Þá varð hann besti hundur tegundar, Besti hundur í tegundarhópi 1 og í lok dags stóð hann uppi sem sigurvegari sýningarinnar eða BESTI HUNDUR SÝNINGAR BIS1. Gætum við ekki verið ánægðari að hafa farið útí þetta ævintýri með Hildi okkar hjá Forynju ræktun og að Leif, Ragnhild og Toril skildu treysta okkur fyrir þessum gullmola. Velgengnin einspornaðist samt ekki við Whims, en Gjósku ræktun gjörsamlega átti sýninguna. Allir okkar hundar fengu exc og sigruðu sína flokka með glæsilegar umsagnir frá hinum virta dómara Zoran Brankovic. Í síðhærðu hundunum sigraði meistarinn CIE ISSHCH NLM RW-15 Gjósku Rökkvi-Þór BESTA HUND TEGUNDAR eftir árs langa pásu frá syningum, hann hlaut bæði Alþjóðlegt og Norðurljósa meistarastig en hann hefur lokið við báða þá titla. Gjósku www. Píla.is sigraði ungliðaflokkinn og fékk sitt síðasta ungliðameistarastig, hún bíður nú staðfestingar á ungliðameistaratitlinum sínum. Píla okkar fékk einnig sitt fyrsta Íslenska meistarastig, varð 2. besta tík tegundar og BESTI UNGLIÐI TEGUNDAR. Snögghærðu hundarnir okkar gerðu okkur ekki minna stolt, en eins og áður kom fram varð Whims besti hundur tegundar, en besta tík tegundar og besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni varð ofur drottningin okkar Leó dóttirin ISShCh RW-18 Gjósku Una Buna með sitt annað Alþjóðlega meistarastig. Nú þarf hún bara að klára vinnuprófin sín til þess að geta sótt um Alþjóðlegan meistaratitil eins og foreldrar sínir. Gjósku Komma mætti líka galvösk á svæðið í annað skipti í öldungaflokk og eins og fyrri daginn þá varð hún BESTI ÖLDUNGUR TEGUNDAR með sitt annað öldungameistarastig. Gamlan gerði enn betur og varð 4. besta tík tegundar úr stórum hópi tíka. Snöggi ræktunarhópurinn okkar varð einnig besti ræktunarhópur tegundar og keppti í úrslitum seinna um daginn. Þar sýndi hópurinn allar sínar bestu hliðar og var Gjósku ræktun eins og svo oft áður valinn BESTI RÆKTUNARHÓPUR SÝNINGAR. Erum við enn í skýjunum eftir þessa æðislegu helgi og verður hún seint toppuð. Hérna kemur upptalning á úrslitum allra Gjósku og Forynju hundanna á sýningunni: síðhærðir CIE ISSHCH NLM RW-15 Gjósku Rökkvi-Þór - exc, 1. sæti meistarafl. meistaraefni, Besti rakki tegundar, Alþjóðlegt meistarastig, Norðurljósa meistarastig, BESTI HUNDUR TEGUNDAR ISJCh Gjósku www.Píla.is - exc, 1. sæti ungliðafl. meistaraefni, Ungliðameistarastig, 2. Besta tík tegundar, Íslenskt meistarastig, BESTI UNGLIÐI TEGUNDAR ISJCh Gjósku Valkyrja - exc, 1. sæti unghundafl. meistaraefni, 3. Besta tík tegundar, Alþjóðlegt meistarastig ISJCh Gjósku Vænting - exc, 1. sæti opinn fl. Gjósku ræktun - heiðursverðlaun snögghærðir ISJCh Ivan von Arlett - exc, 2. sæti ungliðafl. Forynju Aston - exc, 5. sæti opinn fl. Gjósku Uggi - exc, 1. sæti opinn fl. ISCH NUCH DKCH Welincha's Whimpy - exc, 1. sæti meistarafl. meistaraefni, Besti rakki tegundar, Íslenskt meistarastig, Alþjóðlegt meistarastig, Norðurljósa meistarastig, BESTI HUNDUR TEGUNDAR, BEST IN GROUP 1, BEST IN SHOW 1 ISShCh Gjósku Máni - exc, 1. sæti öldungafl. heiðursverðlaun, Annar besti öldungur tegundar Gjósku Thea - exc, 1. sæti opinn fl. OB-I Forynju Aska - exc, 1. sæti vinnuhundafl. CIB ISCH RW-14 Gjósku Mylla - exc, 3. sæti meistarafl. meistaraefni ISShCh RW-18 Gjósku Una Buna - exc, 1. sæti meistarafl. meistaraefni, Besta tík tegundar, Alþjóðlegt meistarastig, Norðurljósa meistarastig, BESTI HUNDUR TEGUNDAR AF GAGNSTÆÐU KYNI Gjósku Komma - exc, 1. sæti öldungafl. meistaraefni, Öldungameistarastig, 4. Besta tík tegundar, BESTI ÖLDUNGUR TEGUNDAR Gjósku ræktun - 1. sæti, heiðursverðlaun, Besti ræktunarhópur tegundar, BESTI RÆKTUNARHÓPUR SÝNINGAR Myndirnar eru frá ljósmyndara HRFÍ Ágústi Ágústssyni og Ólöfu Gyðu Risten Undirbúningur fyrir fyrstu sýningu ársins er í fullum gangi og allir að verða ready. Við sleppum því þó ekki að fara í heiðina í viðringa og njótum okkar best þar. Við smelltum nokkrum myndum í viðringi um daginn, en sólin var að setjast og birtan því einstaklega falleg á meðan að hún entist.
|
Gjósku Ræktun
|