Gamli meistarinn okkar hann CIB ISCh BISS RW-16 RW-15 Juwika Fitness er í fullu starfi við það að kenna Gjósku Xtru og Gjósky X-Factor á lífið og hvernig á að vera alvöru schäfer hundur. Leó er frábær kennari, ljúfur en ákveðinn við hvolpana og gætu þau ekki haft betri fyrirmynd í lífinu þessar ungu stjörnur.
0 Comments
Stigahæsta schäferræktun ársins 2019 Stigahæsta snögghærða tík ársins 2019 Stigahæsti siðhærði rakki ársins 2019 Stigahæsti siðhærðir schäfer ársins 2019 Stigahæsti öldungur ársins 2019 Stigahæsti schäfer Hlýðni 1 ársins 2019 Stigahæsti schäfer Spor 2 ársins 2019 Árið 2019 hefur verið frábært hjá Gjósku ræktun. Við eignuðumst fullt af frábærum hvolpum og ennþá betri eigendum þeirra, ásamt því að hala inn meistarastig og nýja meistara. Þrátt fyrir gott gengi átti Gjósku ræktun rúmlega 20 færri skráningar á sýningar yfir árið en sú ræktun sem átti flestar svo sigurinn er ennþá sætari fyrir vikið.
Gjósku ræktun hlaut, 9 nýja meistaratitla á árinu, fengum 9 Íslensk meistarastig og multich Juwika Fitness dóttirin Forynju Aska fékk 1 Íslenskt meistarastig. Við fengum 7 alþjóðleg meistarastig í hús, 6 Norðurlanda meistarastig, 7 öldunga meistarastig og 1 ungliða meistarastig. Við fengum 3 Reykjavík Winner 2019 titla og áttum 7 sinnum Besta hund tegundar yfir árið, 6 sinnum áttum við Besta hund tegundar af gagnstæðu kyni, 7 sinnum áttum við Besta öldung tegundar og 2 sinnum Besta öldung tegundar af gagnstæðu kyni. Við byrjuðum árið með tropi og áttum þá BESTA HUND SÝNINGAR. Við mættum einungis einu sinni með ungliða og varð hún þá Besti ungliði tegundar. Öldungarnir okkar urðu einu sinni BESTI ÖLDUNGUR SÝNINGAR, einu sinni 3. Besti öldungur sýningar og tvisvar sinnum 4. Besti öldungur sýningar. Einnig áttum við 5 sinnum besta afkvæmahóp tegundar, tvisvar sinnum BESTA AFKVÆMAHÓP SÝNINGAR og tvisvar sinnum 2. Besta afkvæmahóp sýningar. Toppurinn er sjálfsagt sá að 8 sinnum á árinu áttum við Besta ræktunarhóp tegundar, 3. BESTA RÆKTUNARHÓP SÝNINGAR og einu sinni annan Besta ræktunarhóp sýningar. Gjósku ræktun er enn og aftur stigahæsta schäfer ræktun HRFÍ og STIGAHÆSTA SCHÄFERRÆKTUN DEILDARINNAR 2019 Í vinnu áttum við einnig gott ár, þar eignuðumst við nýjann Hlýðni 1 meistara hana ISCH ISJCH OB-1 Gjósku Væntingu, en er hún stigahæsti schäfer ársins í Hlýðni 1, Stigahæsti síðhærði schäfer ársins í spori 1 og STIGAHÆSTI SÍÐHÆRÐI SCHAFER í vinnu FRÁ UPPHAFI. C.I.B ISCh RW-16 RW-15 Juwika Fitness er einnig stigahæsti schäfer ársins í spor 2 og stigahæsti hundur ársins yfir allar tegundir í spor 2. Forynju ræktun átti góðu gengi að fagna í vinnu eins og fyrri ár. En stigahæsti Schäfer ársins í Hlýðni 2, nýr Hlýðni 2 meistari, Stigahæsti schäfer ársins í spori 3, nýr sporameistari og YNGSTI SCHAFER frá UPPHAFI til að hljóta þann titil er hin stórglæsilega OB-II OB-I IStrCh Forynju Aska. OB-II OB-I Vonziu's Asynja er stigahæsti schäfer ársins í hlýðni 3. ISJCh Ivan von Arlett er einnig stigahæsti hundur ársins og stigahæsti Schäfer ársins í hlýðni brons og þriðji stigahæsti schäfer ársins í Hlýðni 1 sem og stigahæsti schäfer ársins í spori 1, Forynju Aston er annar stigahæsti schäfer ársins í hlýðni brons og annar stigahæsti schäfer ársins í hlýðni 1. Áhugavert er að segja frá því að eingöngu mættu schäfer hundar frá Gjósku og Forynju ræktun í vinnu og eins og í fyrra er Forynju ræktun STIGAHÆSTA SCHÄFER RÆKTUN ÁRSINS Í VINNU. Takk fyrir frabært vinnu og sýningarár 2020 verður ennþá stærra og flottara !! Þá er sýningarárið búið og síðasta sýning ársins fór vel fyrir Gjósku ræktun eins og venjulega. Við áttum Besta hvolp tegundar og 3. Besta hvolp sýningar, Besta ræktunarhóp tegundar, Besta öldung tegundar, eignuðumst nýjan öldungameistara og kláruðum árið sem stigahæsta schäfer ræktun deildarinnar og stigahæsta schäfer ræktun innan HRFÍ ásamt því að vera í topp baráttunni um stigahæstu ræktendur HRFÍ um allar tegundir.
Við gætum ekki verið þakklátari fyrir þá frábæru hundaeigendur og vini sem við eigum í þessu sýningarbrasi, en án ykkar allra væri árangur okkar ekki sá sami. Helstu úrslit frá sýningunni eru þessi: Snögghærðir Gjósku Uggi - exc, 4. sæti opinn fl. RW-19 SG1 SG61 Lider von Panoniansee - exc, 1. sæti opinn fl. meistaraefni, 2. Besti rakki tegundar, vara-Norðurlanda meistarastig ISvetCh Gjósku Mikki-Refur - exc, 1. sæti öldungafl. meistaraefni, Öldungameistarastig, Besti öldungur tegundar NORDUCH ISShCh RW-19 RW-18 Gjósku Una-Buna - exc, 3. sæti meistarafl. meistaraefni ISShCh Gjósku Rispa - exc, 2. sæti meistarafl. meistaraefni, 4. Besta tík tegundar Gjósku ræktun - exc, 1. sæti, heiðursverðlaun, Besti ræktunarhópur tegundar siðhærðir Gjósku Quiz - 2. sæti hvolpafl. Gjósku Queen Bee - 2. sæti hvolpafl. Gjósku QT - 1. sæti hvolpafl. heiðursverðlaun, Besti hvolpur tegundar, 3. BESTI HVOLPUR SÝNINGAR CIE ISShCh NLM RW-15 Gjósku Rökkvi-Þór - vg, 1. sæti meistarafl. ISJCh Gjósku www.Píla. is - exc, 1.sæti unghundafl. meistaraefni, 3. Besta tík tegundar, Íslenskt meistarastig ISCh OB-I ISJCh Gjósku Vænting - exc, 1. sæti vinnuhundafl. meistaraefni, 2. Besta tík tegundar, Norðurlanda meistarastig Gjósku ræktun - exc, 2. sæti Myllan okkar er af öllum öðrum ólöstuðum sú allra besta ræktunartík landsins og þótt víða væri leitað. Mylla er sjálf eina lifandi tíkin á landinu sem er Alþjóðlegur meistari C.I.B, hún er Íslenskur meistari, Íslenskur öldungameistari og Reykjavíkur Winner. Einnig er hún eina eftirlifandi schäfer tíkin sem hefur lokið hlýðni, spor og smalaeðlisprófum. En fyrir utan það að vera frábær heimilishundur, vinnusöm og sigursæl á hundasýningum þá hefur hún gefið af sér afkomendur í fremstu röð. Mylla hefur mætt með afkvæmahóp á sýningar alls 15 sinnum, af þeim 15 hefur hun sigrað besti afkvæmahópur tegundar 14 sinnum. Hún hefur 7 sinnum átt BESTA AFKVÆMAHÓP SÝNINGAR, 3 sinnum átt 2. Besta afkvæmahóp sýningar, 2 sinnum átt 3. Besta afkvæmahóp sýningar og 1 sinni átt 4. besta afkvæmahóp sýningar. Engin tík, og aðeins einn hundur Welincha's Yasko pabbi Myllu hefur betri árangur. Mylla á úr 3. gotum, 8 meistara og 4 barnabörn hennar eru meistarar, afkvæmi hennar og afkomendur hafa samanlagt fengið 39 íslensk meistarastig, 21 Alþjóðleg meistarastig, 7 Norðurlanda meistarastig, mörg hafa klárað vinnupróf og flest sem mætt hafa á sýningar hafa raðað sér í sæti um stigahæstu tíkur og rakka ársins. Við erum vægast sagt þakklátar fyrir að okkur hafi fæðst þessi gullmoli, sem færir okkur áfram sín frábæru gæði og gleður okkur með því að vera til. Um miðjan desember eru væntanlegir litlir Y hvolpar undan meistaranum CIB ISCh ISvetCh RW-14 Gjósku Myllu og ofur hundinum honum RW-19 SG1 SG61 Lider von Panoniansee. Lider hefur gert það gott síðan að hann mætti til landsins bæði á sýningum og í ræktun, en hann á úr 3 gotum 21 hvolp. Lider er frír af mjaðma og olnbogalosi A/A, virkilega geðgóður og gullfallegur rakki sem á framtíðina fyrir sér svo sannarlega. Myllu okkar þarf vart að kynna, hún er allra sigursælasta ræktunartík landsins, en hún hefur margsinnis unnið Besta afkvæmahóp sýningar, undan henni hafa komið fjölda margir meistarar og einnig á hún nú þegar 3 barnabörn sem eru búin að klára meistaratitla. Mylla er einnig mjög heilbrigð og gefur það gríðarlega sterkt af sér, ásamt því er Mylla vinnusöm, hún hefur lokið sporaprófi, hefur lokið bæði hlýðni brons og hlýðni 1 á vegum vinnuhundadeildar hrfí sem og klárað smalaeðlispróf.
Hér leiðum við saman glæsilegar línur af fallegum helbrigðum hundum sem hafa sannað sig alstaðar í heiminum. Metnaðurinn í áralangri ræktun og gæða innflutningi skilar sér í frábærum hundum sem skara framúr hvar sem þeir koma. Deildarsýning schäferdeildarinnar var haldin laugardaginn 12. október sl. og mættu nokkrir Gjósku hundar til leiks. Áttum við góðu gengi að fagna eins og venjulega og helst má þar telja að við eignuðumst 2 nýja Gjósku meistara (Gjósku Væntingu og Gjósku Rispu), Bestu ræktunarhópa sýningar bæði loðinn og snöggan, Besta öldung sýningar, og Besta afkvæmahóp sýningar. Ungi prinsinn okkar hann Lider varð einnig 2. besti rakki tegundar á móti 3 fullorðnum rökkum og var þetta hans fyrsta sýning í opnum flokki. Þrátt fyrir að ekki hafi verið minni skráning á deildarsýningu schäferdeildarinnar í um 10 ár var sýningin hin glæsilegasta og var mikið fjör hjá Gjósku og Forynju ræktun eins og alltaf. En helstu úrslit af sýningunni voru þessi:
Síðhærðir CIE ISShCh RW-15 NLM Gjósku Rökkvi-Þór - exc, 1. sæti meistarafl. meistaraefni, BESTI SÍÐHÆRÐI RAKKI SÝNINGAR, BESTI HUNDUR TEGUNDAR AF GAGNSTÆÐU KYNI ISJCh Gjósku www. Píla.is - exc, 1. sæti unghundafl. meistaraefni, 3. BESTA SÍÐHÆRÐA TÍK SÝNINGAR ISJCh Gjósku Vænting - exc, 1. sæti vinnuhundafl. meistaraefni, 2. BESTA SÍÐHÆRÐA TÍK SÝNINGAR, Íslenskt meistarastig, NÝR ÍSLENSKUR MEISTARI ISShCh ISJCh RW-19 Gjósku Valkyrja - exc, 2. sæti meistarafl. Gjósku ræktun - 1. sæti, Heiðursverðlaun, BESTI RÆKTUNAR HÓPUR TEGUNDAR, BESTI RÆKTUNARHÓPUR SÝNINGAR Snögghærðir Gjósku Uggi - exc, 5. sæti opinn fl. Forynju Aston - exc, 3. sæti opinn fl. meistaraefni RW-19 SG1 SG61 Lider von Panoniansee - exc, 1. sæti opinn fl. meistaraefni, 2. BESTI SNÖGGHÆRÐI RAKKI SÝNINGAR ISJCh Ivan von Arlett - exc, 3. sæti vinnuhundafl. CIB ISCh RW-16 RW-15 Juwika Fitness - exc, 2. sæti vinnuhundafl. meistaraefni, BESTI AFKVÆMAHÓPUR TEGUNDAR, BESTI AFKVÆMAHÓPUR SÝNINGAR Gjósku Mikki-Refur - exc, 1. sæti öldungafl. meistaraefni, Öldungameistarastig, BESTI ÖLDUNGUR TEGUNDAR, BESTI ÖLDUNGUR SÝNINGAR Gjósku Vissa - exc, 3. sæti opinn fl. Gjósku Rispa - exc, 1. sæti opinn fl. meistaraefni, 3. BESTA SNÖGGHÆRÐA TÍK SÝNINGAR, Íslenskt meistarastig, NÝR ÍSLENSKUR SÝNINGARMEISTARI NORDUCH ISShCh RW-19 RW-18 Gjósku Una Buna - exc, 2. sæti meistarafl. meistaraefni, 2. BESTA SNÖGGHÆRÐA TÍK SÝNINGAR CIB ISCh ISvetCh RW-14 Gjósku Mylla - exc, 1. sæti öldungaflokkur, heiðursverðlaun, BESTI ÖLDUNGUR TEGUNDAR AF GAGNSTÆÐU KYNI Gjósku ræktun - 1. sæti Heiðursverðlaun, BESTI RÆKTUNARHÓPUR TEGUNDAR, ANNAR BESTI RÆKTUNARHÓPUR SÝNINGAR Gjósku Queen Bee Gjósku Quality Gjósku QT Gjósku Quiz Gjósku Question Gjósku Quentin Tarantino Urðu átta vikna um helgina og fóru á sín framtíðar heimili. Þau eignuðust öll frábærar fjölskyldur og hlökkum við til þess að fylgjast með þeim vaxa og dafna áfram. Við óskum nýjum Gjósku eigendum til hamingju og bjóðum þau velkomin í hópinn.
Fullorðna gengið okkar fær sína sinnu þrátt fyrir hvolpastand á heimilinu. Við kipptum vélinni með í viðring og smelltum myndum af fallegu hundunum okkar, RW-19 SG1 SG61 Lider von Panoniansee, CIB ISCH RW-16 RW-15 Juwika Fitness, CIB ISCh ISvetCh RW-14 Gjósku Mylla, NORDUCH ISShCh RW-19 RW-18 Gjósku Una-Buna, ISJCh Gjósku www.Píla.is, ISJCh Snætinda Íslandssól á Gjósku
Hin unga, glæsilega og klára ISJCh Gjósku Vænting hefur nú bætt við sig öðrum meistaratitli, OB-I eða Hlýðni 1 meistari. Glæsileg tík með einstakt vinnueðli og svo er eigandinn hennar hún Tinna okkar ekkert lítið dugleg með hana. Við erum svo stoltar af þessum drottningum sem við erum ótrúlega heppnar að eiga í okkar "Team-i". Vænting eða Kæja eins og hún er kölluð er fyrsti síðhærði schäfer landsins sem hlýtur meistaratitil í hlýðni, en til þess þarf að fá fyrstu einkun í Hlýðni 1 hjá að minnsta kosti 2. dómurum, en Kæja er einnig stigahæsti schäfer landsins í H1.
Framtíðin er svo sannarlega björt í okkar ræktun, 12 nýjir hvolpar hjá okkur, nýjir meistarar hægri vinstri, stigahæstu hundar og ræktendur deildarinnar! Takk allir Gjósku hunda eigendur - Þið eruð FRÁBÆR !! Hér á heimilinu eru gotin okkar tvö algerlega búin að fanga hug okkar og hjörtu og steingleymdist að setja inn frétt frá tvöfödu 50 ára afmælissýningu HRFÍ sem haldin var helgina 24.-25. ágúst sl.
Auðvitað gekk Gjósku hundunum vel að vanda og áttum við bestu hunda tegundar báða dagana. Loðni meistara strákurinn hann C.I.E ISShCh NLM RW-15 Gjósku Rökkvi-Þór kom sá og sigraði og varð besti hundur tegundar bæði á NKU sýningunni á laugardeginum og þeirri alþjóðlegu á sunnudeginum. Hann trónir nú á toppnum yfir bæði afbrigði sem STIGAHÆSTI HUNDUR DEILDARINNAR, ekki slæmt eftir rúmlega árs pásu frá sýningarhringnum. Systur hans voru ekki af verri endanum heldur en hálfsystir hans hún NORDUCH ISShCh RW-19 RW-18 Gjósku Una Buna varð besta tík tegundar á laugardeginum og gotsystir hans hún Gjósku Rispa gerði enn betur þegar að hún varð Besti hundur tegundar á sunnudeginum með sitt annað Íslenska meistarastig og fyrsta Alþjóðlega meistarastig og endaði daginn svo á því að verða í öðru sæti í tegundarhópi 1. Öldungarnir okkar voru líka glæsileg, en systkinin CIB ISCh ISvetCh RW-14 Gjósku Mylla og Gjósku Mikki skiptust á dögum á því að verða bestu öldungar tegundar og Mikki bætti svo rúsínunni við pylsuendann og varð 3. Besti öldungur sýningar. Og Mylla átti enn einu sinni Besta afkvæmahóp sýningar á sunnudeginum. Gjósku ræktun trónir nú á toppnum sem stigahæsta ræktun hjá Schäferdeildinni og hjá HRFÍ, Gjósku Rökkvi-Þór er eins og kom fram áður stigahæsti síðhærði hundur deildarinnar og stigahæsti hundur yfir bæði feldafbrigði. RW-19 SG1 SG61 Lider von Panoniansee er stigahæsti schäfer hjá HRFÍ og Gjósku Rispa númer 2. Við erum svo stoltar af öllum þessum fallegu hundum, eigendum og sýnendum þeirra. Framtíðin er björt hjá Gjósku ræktun !! Hérna koma helstu úrslit frá sýningunum: Laugardagur snögghærðir ISJCh Ivan von Arlett - exc, 1. sæti unghundafl. Gjósku Uggi - VG, 2. sæti opinn fl. CIB ISCh RW-16 RW-15 Juwika Fitness - exc, 1. sæti meistarafl. meistaraefni, 2. Besti rakki tegundar, vara-Norðurlanda meistarastig Gjósku Mikki Refur - VG, 1. sæti öldungafl. Gjósku Rispa - VG, 2. sæti opinn fl. NORDUCH ISShCh RW-19 RW-18 Gjósku Una Buna - exc, 1. sæti meistarafl. meistaraefni, Besta tík tegundar, Besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni CIB ISCh ISvetCh RW-14 Gjósku Mylla - exc, 1. sæti öldungafl. meistaraefni, 2. besta tík tegundar, Norðurlanda meistarastig, Öldunga meistarastig, Besti öldungur tegundar, Besti afkvæmahópur tegundar Gjósku ræktun - exc, 2. sæti, heiðursverðlaun, annar besti ræktunarhópur tegundar Síðhærðir CIE ISShCh NLM RW-15 Gjósku Rökkvi-Þór - exc. 1. sæti meistarafl. meistaraefni, Besti rakki tegundar, Norðurlanda meistarastig, Besti hundur tegundar ISJCh Gjósku www.Píla.is - exc, 1. sæti unghundafl. ISJCh Gjósku Vænting - exc, 1. sæti vinnuhundafl. Gjósku ræktun - exc, 1. sæti, heiðursverðlaun, BESTI RÆKTUNARÓPUR TEGUNDAR Sunnudagur síðhærðir CIE ISShCh NLM RW-15 Gjósku Rökkvi-Þór - exc. 1. sæti meistarafl. meistaraefni, Besti rakki tegundar, Besti hundur tegundar ISJCh Gjósku www.Píla.is - VG, 1. sæti unghundafl. ISJCh Gjósku Vænting - VG, 1. sæti vinnuhundafl. Gjósku ræktun - exc, 1. sæti, BESTI RÆKTUNARÓPUR TEGUNDAR snögghærðir ISJCh Ivan von Arlett - exc, 1. sæti unghundafl. meistaraefni Gjósku Uggi - exc, 1. sæti opinn fl. CIB ISCh RW-16 RW-15 Juwika Fitness - exc, 1. sæti meistarafl. meistaraefni, 4. Besti rakki tegundar Gjósku Mikki Refur - exc, 1. sæti öldungafl. meistaraefni, 3. besti rakki tegundar, Öldunga meistarastig, Besti öldungur tegundar, 3. BESTI ÖLDUNGUR SÝNINGAR Gjósku Rispa - exc, 1. sæti opinn fl. meistaraefni, Besta tík tegundar, Íslenskt meistarastig, Alþjóðlegt meistarastig, Besti hundur tegundar, 2. sæti Tegundarhópur 1 NORDUCH ISShCh RW-19 RW-18 Gjósku Una Buna - exc, 2. sæti meistarafl. meistaraefni CIB ISCh ISvetCh RW-14 Gjósku Mylla - exc, 1. sæti öldungafl. meistaraefni, 4. besta tík tegundar, Besti öldungur tegundar af gagnstæðu kyni, Besti afkvæmahópur tegundar, BESTI AFKVÆMAHÓPUR SÝNINGAR Gjósku ræktun - exc, 1. sæti, heiðursverðlaun, BESTI RÆKTUNARÓPUR TEGUNDAR Hvolparnir eru nú orðnir 6 og 5 vikna og halda áfram í stífum pósuæfingum á milli þess sem þau hlaupa um og leika sér. Gotin eru bæði stórglæsileg og gefa góða mynd um hvað hann Lider okkar ætlar að verða frábær ræktunarhundur, en hann á einnig 9 gull fallega hvolpa hjá meðeigandanum sínum Hildi með Forynjuræktun.
Gjósku XXS Gjósku XXS Gjósku X-Wife Gjósku X-Wife Gjósku X-Wife Gjósku Xtra Gjósku Xtra Gjósku Xtra Gjósku X-Box Gjósku X-Box Gjósku X-Box Gjósku X-Factor Gjósku X-Factor Gjósku X-Factor Gjósku X-Factor Gjósku X-Man Gjósku X-Man Gjósku QT Gjósku QT Gjósku QT Gjósku Quality Gjósku Quality Gjósku Quality Gjósku Queen Bee Gjósku Queen Bee Gjósku Queen Bee Gjósku Queen Bee Gjósku Quentin Tarantino Gjósku Quentin Tarantino Gjósku Quentin Tarantino Gjósku Quiz Gjósku Quiz Gjósku Quiz Gjósku Question Gjósku Question Gjósku Question
Á sunnudaginn síðasta urðu Q hvolparnir 4 vikna og X hvolparnir 3 vikna. Það er unun að fá að fylgjast með þessum fallegu hvolpum þroskast og uppgötva heiminn. Þau eru öll einstaklega róleg, skemmtileg og virkilega lofandi hundar sem spennandi verður að sjá í framtíðinni, hvort sem það verður í sýningarhringnum, í vinnu eða sem frábærir fjölskyldumeðlimir.
X-gotið mætti í heiminn 28. júlí sl. 6 hvolpar, 3 rakkar og 3 tíkur. Þau vaxa og dafna vel og er meistarinn hún ISShCh ISJCh RW-19 Gjósku Valkyrja ótrúlega góð mamma. Hvolparnir eru komin með nöfn:
Gjósku X-wife Gjósku Xtra Gjósku X Gjósku X-man Gjósku X-box Gjósku X-ray Q gotið mætti á svæðið 21. júlí sl. 4 tíkur og 3 rakkar og heilsast móður og hvolpum mjög vel. Áhugasamir um hvolpa úr þessu goti geta haft samband á runahe@gmail.com eða í s. 774-8606
|
Gjósku Ræktun
|