Gjósku Schäferhundar
  • Forsíða
    • Hafa samband
  • Fréttir
  • Hundarnir okkar
    • Tíkurnar
    • Rakkarnir
  • Hvolpar
    • Til sölu
  • Árangur Gjóskuræktunar
  • Tegundin
    • Myndir
    • Saga tegundarinnar
    • Standard
    • Fróðleikur
  • Íslenskur fjárhundur
    • Hundarnir okkar
    • Hvolpar - Got
    • Myndir
    • Árangur sýningar og annað

Sýningarárið 2022

12/31/2022

0 Comments

 
Þá líður enn eitt árið hjá og gaman að líta um öxl á velgengni Gjósku hunda á sýningarárinu 2022.

Við erum enn að berjast við rangar sakargiftir og óréttmæta uppsögn úr félaginu, en sá slagur er rétt að byrja og vonandi leysist úr þessu á nýju ári. Við trúum því allavega að réttlætið muni sigra og þökkum fyrir sýndann stuðning í gegnum þessar raunir.

Þrátt fyrir þetta hafa glæsilegir Gjósku hundar, afkomendur og innfluttir hundar okkur tengdir átt frábært ár og óskum við eigendum þeirra innilega til hamingju.

Í síðhærðum Schäfer átti Gjósku ræktun stigahæsta öldung ársins en það var hinn sí ungi ofur rakki ISVETCH C.I.E ISShCh RW-15 NLW-15 Gjósku Rökkvi-Þór. Varð hann einnig 4. Stigahæsti rakki ársins.

Í tíkunum áttum við hvorki meira né minna en 5 af 13 stigahæstu tikum ársins, fleiri en nokkur annar ræktandi. RW-22 Gjósku Ydda og ISJCh Gjósku Þula urðu báðar besti hundur tegundar á árinu og nældu sér báðar í sæti í tegundarhóp 1, báðar fyrir ofan snögga afbrigði tegundarinnar sem er fremur óalgengt. Þula braut blað í sögu tegundarinnar her á landi, en hún var fyrsti síðhærði schäferinn sem sigrar sterkan tegundarhóp 1. Gjósku Ydda eða Díva eins og hún er kölluð hlaut á árinu bæði Íslenskt meistarastig, Alþjóðlegt meistarastig og titilinn Reykjavík Winner 2022. Gjósku Þula varð á árinu Íslenskur Ungliðameistari, hlaut 2 íslenks ungliðameistarastig, 1. Íslenskt meistarastig og 1. Norðurlanda meistarastig. Einnig varð hún 2. besti ungliði sýningar og er eini síðhærði schäfer landsins sem hefur náð þeim árangri.

Snögghærðu hundarnir okkar áttu líka gott ár. Innfluttu Panoniansee prinsarnir Pablo og Lider enduðu árið jafnir í 2. sæti í keppni um stigahæsta hund ársins. Lider kláraði íslenska meistaratitilinn sinn og Pablo hlaut á árinu 2 íslensk meistarastig og þarf því nú einungis 1 til þess að verða íslenskur meistari.

Báðir sönnuðu þeir sig sem ræktunarhundar en Lider átti afkvæmi í fremstu röðum bæði í vinnu og á sýningum. En hann átti 10 afkvæmi á listum yfir stigahæstu hunda ársins, 3 hunda á meðal stigahæstu ungliða og afkvæmi hans fengu samanlagt 9 meistarastig allt frá ungliða stigum upp í Alþjóðleg meistarastig.

Fyrstu gotin undan Pablo mættu til leiks og átti hann besta hvolp tegundar 7 sinnum á árinu og 2. sinnum átti hann besta hvolp af gagnstæðu kyni. 2. átti Pablo okkar BESTA hvolp sýningar og einu sinni 2. Besta hvolp sýningar. Í lok árs mættu afkvæmi hans upp í ungliðaflokk, en þar urðu gotsystkini undan Leo dótturinni Forynju Ösku bestu ungliðar tegundar og hlutu nýja junior winner titla. Það má með sanni segja að hann ætlar svo sannarlega að stimpla sig inn sem úrvals ræktunardýr.

þá áttum við í snögghærðum tíkum bestu hvolpa tegundar í systrunum Gjósku Örlagadís og Örlaganorn, en Dísa litla gerði sér litið fyrir og varð besti hvolpur sýningar í júní. Á lista yfir stigahæstu tíkur ársins áttum við 4 glæsilega fulltrúa. Hin unga og efnilega Gjósku Ægifagra Easy Unudóttir hlaut á árinu sitt fyrsta ungliða meistarastig, Íslenskt meistarastig og varð 4. Besti Ungliði sýningar. Gjósku Xtra heillaði ekki bara áhorfendur heldur líka dómara og hlaut sitt fyrsta Alþjóðlega meistarastig í sumar. Erum við virkilega stoltar af þessum fallegu fulltrúum tegundarinnar.

​Við lítum stoltar um öxl og horfum björtum augum til framtíðar. Með bjartsýni að vopni og öflugt fólk okkur innan handar vonum við að 2023 verði það besta hingað til. Þökkum fyrir samfylgdina á árinu og óskum ykkur öllum gleðilegs nýs árs.


0 Comments
    Picture

    Gjósku Ræktun
    "Alvöru schäfer"


    Eldri fréttir

    February 2023
    December 2022
    November 2022
    June 2022
    April 2022
    January 2022
    December 2021
    November 2021
    September 2021
    June 2021
    April 2021
    February 2021
    January 2021
    December 2020
    November 2020
    October 2020
    August 2020
    July 2020
    May 2020
    April 2020
    March 2020
    February 2020
    December 2019
    November 2019
    October 2019
    September 2019
    August 2019
    July 2019
    June 2019
    May 2019
    April 2019
    March 2019
    February 2019
    January 2019
    December 2018
    November 2018
    October 2018
    September 2018
    August 2018
    July 2018
    June 2018
    May 2018
    April 2018
    March 2018
    February 2018
    January 2018
    December 2017
    November 2017
    October 2017
    September 2017
    August 2017
    July 2017
    June 2017
    May 2017
    April 2017
    March 2017
    February 2017
    November 2016
    October 2016
    September 2016
    August 2016
    July 2016
    June 2016
    May 2016
    April 2016
    March 2016
    February 2016
    January 2016
    December 2015
    November 2015
    October 2015
    September 2015
    August 2015
    July 2015
    June 2015
    May 2015
    April 2015
    March 2015
    February 2015
    January 2015
    December 2014
    November 2014
    October 2014
    September 2014
    August 2014
    June 2014
    April 2014
    February 2014
    January 2014
    December 2013
    November 2013
    October 2013
    September 2013
    July 2013
    June 2013
    May 2013
    April 2013
    February 2013
    January 2013
    December 2012
    November 2012
    October 2012
    September 2012
    August 2012
    June 2012
    March 2012
    October 2011
    September 2011
    January 2011
    December 2010
    June 2010

Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Forsíða
    • Hafa samband
  • Fréttir
  • Hundarnir okkar
    • Tíkurnar
    • Rakkarnir
  • Hvolpar
    • Til sölu
  • Árangur Gjóskuræktunar
  • Tegundin
    • Myndir
    • Saga tegundarinnar
    • Standard
    • Fróðleikur
  • Íslenskur fjárhundur
    • Hundarnir okkar
    • Hvolpar - Got
    • Myndir
    • Árangur sýningar og annað