Gjósku Schäferhundar
  • Forsíða
    • Hafa samband
  • Fréttir
  • Hundarnir okkar
    • Tíkurnar
    • Rakkarnir
  • Hvolpar
    • Til sölu
  • Árangur Gjóskuræktunar
  • Tegundin
    • Myndir
    • Saga tegundarinnar
    • Standard
    • Fróðleikur
  • Íslenskur fjárhundur
    • Hundarnir okkar
    • Hvolpar - Got
    • Myndir
    • Árangur sýningar og annað

Síðasta sýning ársins

11/30/2018

0 Comments

 
Þá er glæsilegri Winter Wonderland, NKU og Crufts qualified sýningu HRFÍ lokið. Eftir gott gengi á árinu sem var innsiglað á þessari síðustu sýningu ársins stendur Gjósku ræktun uppi sem 2. stigahæsti ræktandi ársins yfir allar tegundir hjá HRFÍ, en í ár voru það 183 ræktendur sem komust á blað. Stjórn félagsins tók þá ákvörðun að reikna ekki stig tegunda saman og voru því loðnu og snöggu hundarnir ekki reiknaðir saman, en hefðu þeir loðnu verið með hefðum við verið LANG STIGAHÆSTAR. Gætum við því ekki verið stoltari af ræktuninni okkar, en við höfum ekki verið með mikið magn af hundum og alls ekki unga hunda í ár. 

Sýningin var að vanda góð fyrir Gjósku ræktun, en litli gaurinn hann Gjósku Uggi mætti í flottu standi og endaði sem besti rakki tegundar og hlaut sitt annað Íslenska meistarastig, fyrsta NKU meistarastig og varð Crufts 2019 qualified. Mamma hans CIB ISCh RW-14 Gjósku Mylla átti sem svo oft áður, Besta afkvæmahóp tegundar og annan Besta afkvæmahóp sýningar. Gjósku Komma mætti í fyrsta sinn í öldungaflokk þar sem hún hlaut Íslenskt Öldungameistarastig og varð Besti öldungur tegundar og endaði sem STIGAHÆSTI ÖLDUNGUR ÁRSINS. Einnig röðuðu hundarnir okkar sér í sæti um bestu tíkur og bestu rakka og átti Gjósku ræktun FLESTA hunda í keppninni um stigahæstu hunda/tíkur ársins. 

Prinsessan á bauninni hún ISShCh RW-18 Gjósku Una Buna er stigahæsta schäfer tík ársins 2018, en núna er stefnan sett á að rækta undan henni og vonandi mun hún gefa okkur eins fallega og góða hvolpa og hún er sjálf.

Viljum við þakka frábæru eigendum Gjósku hundanna fyrir gott ár og hlökkum við til þess næsta, bæði í sýningum, vinnu og almennri gleði.

helstu úrslit sýningarinnar voru þessi:

síðhærðir:

ISShCh ISJCh Gjósku Úlfur - exc, 2. sæti opinn fl.
Gjósku www.Píla.is - exc, 1. sæti ungliðafl.
ISJCh Gjósku Vænting - G, 3. sæti unghundafl.
ISJCh Gjósku Valkyrja - exc, 2. sæti unghundafl.
Gjósku Snjó-Blondy - exc, 1. sæti unghundafl. meistaraefni, 3. Besta tík tegundar
Gjósku ræktun - exc, 2.sæti Heiðursverðlaun

snögghærðir:

Gjósku Uggi - exc, 1. sæti opinn fl. meistaraefni, Besti rakki tegundar, Íslenskt meistarastig, NKU meistarastig, Crufts 2019 Qualified, Besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni
ISShCh Gjósku Máni - exc, 2. sæti meistarafl. meistaraefni, 3. Besti rakki tegundar
ISCh Gjósku Tindur - exc, 4. sæti meistarafl.
Gjósku Vissa - exc, 1. sæti unghundafl. meistaraefni
Gjósku Thea - exc, 1. sæti opinn fl. meistaraefni, 2. Besta tík tegundar, vara NKU meistarastig
ISShCh RW-18 Gjósku Una Buna - exc, 3. sæti meistarafl.
CIB ISCh RW-14 Gjósku Mylla - exc, 2. sæti meistarafl. meistaraefni, 4. Besta tík tegundar, Besti afkvæmahópur tegundar, 2. Besti afkvæmahópur sýningar
Gjósku Komma - exc, 1. sæti öldungafl. meistaraefni, Íslenskt Öldungameistarastig, BESTI ÖLDUNGUR TEGUNDAR
Gjósku ræktun - exc, 2. sæti Heiðursverðlaun
Picture
Picture
Picture
Picture
Picture
Picture
Picture
Picture
0 Comments

Kaldur en frískandi göngutúr í heiðinni

11/5/2018

0 Comments

 
0 Comments

Samstarf við Noreg

11/1/2018

0 Comments

 
Þá líður senn að því að uppáhalds drengurinn okkar hann CIB ISCh RW-16 RW-15 BISS SG1 Juwika Fitness haldi á vit ævintýranna í Noregi. En er hann að fara til vina okkar Ragnhild og Leif Belgen með kennel Welincha's í Noregi og verður þar í eitt ár. Ætla þau að nota Leó okkar í ræktun og mæta með hann á sýningar, en hann mun óneitanlega gera mjög flotta hluti fyrir stofninn í Noregi þar sem að hann er auðvitað gull fallegur, geðgóður og með frábæra ættbók. 

Leó hefur gefið einstaklega falleg afkvæmi, en einnig erfa þau frábært geðslag, mikinn vinnuvilja og top heilbrigði sem við erum að sjálfsögðu mjög ánægðar með. Það verður því frábært að sjá hvað þessi prins mun gera á komandi ári í Noregi.

Við búum svo vel að því að eiga mikið af góðum vinum í Schäfer heiminum og eru Ragnhild og Leif þar engin undantekning. Höfum við þekkt þau í rúm 8 ár og treystum þeim því vel fyrir honum Leó okkar, en mun hann búa hjá þeim í algjöru dekri. Hann mætir á sína fyrstu sýningu í Noregi 16. nóvember nk. en halda Rúna og Hildur út til Noregs fimmtudaginn 15. nóv, svo mikil spenna er í loftinu. 

En í staðin fyrir að Leó okkar fari út kemur til landsins hinn frábæri rakki N.UCH DKCH Welincha's Whimpy, en hann mætir til landsins í mars á næsta ári. Whimpy eða Whims eins og hann er kallaður er virkilega flottur rakki sem við fengum augastað á á siegershow árið 2017, en þar var hann sýndur með góðum árangri í unghundaflokki.

Whims hefur bæði gert það gott á sér sýningum sem og FCI sýningum, en hann er bæði Norskur og Danskur meistari og hefur margsinnis unnið besti hundur tegundar. Það sem uppúr stendur hjá okkur er þó árangur hans á sérsýningum, en hann var eins og fyrr sagði á siegershow 2017 og var þar SG65, hann varð sama ár SG2 á Norska sieger show, eða í 2 sæti yfir alla unghunda þar. Hann toppaði sig svo í ár, full þroskaður og var V1 á eftir aðeins einum VA hundi. Glæsilegur árangur hjá svo ungum hundi, en hann er einungis 2 ára síðan í vor. 

Whims er undan hinum glæsilega þýska rakka Duncan vom Messina, en hefur hann gefið af sér mikið af framúrskarandi afkvæmum og kemur til landsins með tiltörulega nýtt blóð. Mamma hans er svo Welincha's Olly, en hún er undan gotsystur hins magnaða ræktunarhunds Welincha's Yasko sem breytti og bætti ræktun á Íslandi svo um munaði. Annars eru margir af þekktustu hundum sögunnar í ættbókinni hans og mun hann, án alls efa, vera mikil búbót í Íslenska stofninn.

Whimpy mun koma til með að mæta á sýningar og mun standa öllum á Íslandi til boða í ræktunar, séu þeir með tíkur sem standast heilbrigðiskröfur HRFÍ. Hægt er að hafa samband við okkur á email, í gegnum facebook, tala við Hildi, eða beint við Ragnhild og Leif. Whims verður einungis á landinu í eitt ár svo hvetjum við ræktendur og tíkareigendur til þess að nýta tækifærið að fá svona glæsi hund lánaðann.


Picture
CIB ISCh RW-16 RW-15 BISS SG1 Juwika Fitness BOB og BIS2 14.10.2018
Picture
Leó BOB HRFÍ 25.06.2017
Picture
Multi ch, Multi RW, Multi BOB, multi BOS Juwika Fitness
Picture
N.UCH DKCH V1 SG1 Welincha's Whimpy
Picture
Whimpy V1 Norsk Vinner 2018
Picture
Whims, guðdómlegt höfuð og svipur
0 Comments
    Picture

    Gjósku Ræktun
    "Alvöru schäfer"


    Eldri fréttir

    February 2023
    December 2022
    November 2022
    June 2022
    April 2022
    January 2022
    December 2021
    November 2021
    September 2021
    June 2021
    April 2021
    February 2021
    January 2021
    December 2020
    November 2020
    October 2020
    August 2020
    July 2020
    May 2020
    April 2020
    March 2020
    February 2020
    December 2019
    November 2019
    October 2019
    September 2019
    August 2019
    July 2019
    June 2019
    May 2019
    April 2019
    March 2019
    February 2019
    January 2019
    December 2018
    November 2018
    October 2018
    September 2018
    August 2018
    July 2018
    June 2018
    May 2018
    April 2018
    March 2018
    February 2018
    January 2018
    December 2017
    November 2017
    October 2017
    September 2017
    August 2017
    July 2017
    June 2017
    May 2017
    April 2017
    March 2017
    February 2017
    November 2016
    October 2016
    September 2016
    August 2016
    July 2016
    June 2016
    May 2016
    April 2016
    March 2016
    February 2016
    January 2016
    December 2015
    November 2015
    October 2015
    September 2015
    August 2015
    July 2015
    June 2015
    May 2015
    April 2015
    March 2015
    February 2015
    January 2015
    December 2014
    November 2014
    October 2014
    September 2014
    August 2014
    June 2014
    April 2014
    February 2014
    January 2014
    December 2013
    November 2013
    October 2013
    September 2013
    July 2013
    June 2013
    May 2013
    April 2013
    February 2013
    January 2013
    December 2012
    November 2012
    October 2012
    September 2012
    August 2012
    June 2012
    March 2012
    October 2011
    September 2011
    January 2011
    December 2010
    June 2010

Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Forsíða
    • Hafa samband
  • Fréttir
  • Hundarnir okkar
    • Tíkurnar
    • Rakkarnir
  • Hvolpar
    • Til sölu
  • Árangur Gjóskuræktunar
  • Tegundin
    • Myndir
    • Saga tegundarinnar
    • Standard
    • Fróðleikur
  • Íslenskur fjárhundur
    • Hundarnir okkar
    • Hvolpar - Got
    • Myndir
    • Árangur sýningar og annað