Þá er stórglæsilegri júní sýningu HRFÍ lokið og eignuðumst við 2 nýja meistara og 3 Reykjavík Winnera.
Ofur meistarinn hún Gjósku Una Buna bætti við sig tvemur titlum um helgina, en hún varð besta tík tegundar, Reykjavík Winner 2019 og fékk sitt síðasta Norðurlanda meistarastig. Hún er því fyrsti schäfer landsins til þess að verða Norðurlanda meistari NORDUCH, hún er því núna NORDUCH ISShCh RW-19 RW-18 Gjósku Una Buna. Ótrúlegur árangur hjá þessari glæsilegu Leó og Myllu dóttur okkar. Þá var það nýji ofur gaurinn okkar hann Lider von Panoniansee sem stal senunni, hann varð besti rakki tegundar með Íslenskt og Norðurlanda meistarastig, varð Reykjavík Winner 2019, besti hundur tegundar og annar í tegundarhópi 1 á eftir aussie hundinum sem varð best in show. Gætum við ekki verið ánægðari með þennan ofur hund sem við ásamt Hildi hjá Forynju ræktun eigum. Loðna drottningin hun Gjosku Valkyrja mætti einnig sterk til leiks, en vika er síðan að hún var pöruð við Lider og vonandi eru hvolpar undan þessu glæsipari væntanlegir í byrjun ágúst. Valkyrja varð besta tík tegundar á laugardeginum og fékk þá sitt síðasta íslenska meistarastig og er hún því núna orðin Íslenskur sýningarmeistari, hún hlaut einnig sitt fyrsra Norðurlanda meistarastig og varð Reykjavík Winner 2019 og Besti hundur tegundar - Hvílíkur dagur!! Daginn eftir varð hún einnig besta tík tegundar og hlaut þá sitt annað Alþjóðlega meistarastig. ISShCh RW-19 ISJCh Gjósku Valkyrja er upprennandi stjarna. Sýningin gekk ofboðslega vel hjá Gjósku og Forynju ræktun og koma myndir og úrslit frá sýningunni á næstu dögum.
0 Comments
Leave a Reply. |
Gjósku Ræktun
|