Skelltum við okkur austur í Ölfusið að kíkja á flottu D-hvolpana hjá Ölfusræktun. Eru þau orðin 6 vikna og ofboðslega efnileg. Hvolparnir eru endurtekin pörun undan meistaranum ISCh RW-16 RW-15 Juwika Fitness og hinn glæsilegu Gjósku Kommu.
Leó okkar þarf vart að kynna en er hann fyrir síðustu sýningu ársins stigahæsti snögghærði schäfer landsins. Hann er eini rakki landsins sem hlotið hefur RW-titil síðan að hann kom til Íslands, Best in show og Crufts 2017 qualified. Ásamt þessum glæsilegu sigrum hefur hann eina bestu ættbók sem völ er á í heiminum í dag. Gjósku Komma hefur mætt á örfáar sýningar en hlotið einkunina excellent, eða framúrskarandi einstaklingur. Hún er undan sigursælustu tík sem flutt hefur verið flutt til landsins fyrr og síðar, C.I.B ISCh Caty von Oxsalis, en Caty gerði sér lítið fyrir og varð 2x BIS Besti hundur sýningar. Það er ekki að furða að hvolparnir séu glæsilegir með þessa flottu foreldra og eiga framtíðina fyrir sér.
0 Comments
Þá er undirbúningur fyrir Nóvembersýningu HRFÍ farinn á fullt og hundarnir í herþjálfun.
Nýttum við okkur þetta glæsilega haustveður og tókum myndavélina með í göngutúrinn. Eru meistarinn okkar ISCh RW-16 RW-15 Juwika Fitness og Xkippi von Arlett í glæsilegu standi, RW-14 Gjósku Mylla ákvað hinsvegar að fara að skella sér úr fína feldinum sínum rétt fyrir sýningu! |
Gjósku Ræktun
|