Gjósku Schäferhundar
  • Forsíða
    • Hafa samband
  • Fréttir
  • Hundarnir okkar
    • Tíkurnar
    • Rakkarnir
  • Hvolpar
    • Til sölu
  • Árangur Gjóskuræktunar
  • Tegundin
    • Myndir
    • Saga tegundarinnar
    • Standard
    • Fróðleikur
  • Íslenskur fjárhundur
    • Hundarnir okkar
    • Hvolpar - Got
    • Myndir
    • Árangur sýningar og annað

Gjósku O gotið

9/27/2014

0 Comments

 
Okkur langaði að tala aðeins um Gjósku O-hvolpana okkar. Það fæddust 7 litlir hvolpar 3. september 2011 og voru þau undan Gjósku Janis og Eldeyjar Huga.

Janis er undan C.I.B ISCh Easy von Santamar sem hefur í gegnum árin staðið sig mjög vel á sýningum HRFÍ og ISShCh K-Nidya Feetback sem við fluttum inn frá Serbíu. Janis mætti einungis á örfáar sýningar en gekk henni mjög vel í þau skipti sem hún tók þátt, var m.a. 2. Besti hundur sýningar á sérsýningu Fjár og Hjarðhundadeildar HRFÍ árið 2010.  

Eldeyjar Hugi er í miklu uppáhaldi hjá okkur, ekki einungis vegna þess hversu fallegur og geðgóður hann er heldur líka vegna ættana hans. Hugi er undan Gjósku Dömu sem kom úr 2. Schäfer gotinu okkar frá 2004 og var undan fyrstu innfluttu tíkinni okkar Gandra von der Khaler Heide. Pabbi hans Huga er svo Fedor von Santamar sem er best ættaði hundur sem komið hefur til landsins. Hugi sjálfur hefur einnig staðið sig vel á sýningum og er með 2 íslensk meistarastig.

Hugi og Janis eiga bæði bara þessi einu afkvæmi, en segja má að þetta sé eitt sigursælasta got sem fæðst hefur á landinu með tiliti til fjölda meistara og meistarastiga.

En þessir fallegu og frambærilegu hundar heita :

Gjósku Olga-Heiða  (Heiða Berlín 3)

ISShCh Gjósku Olli (Aramis)

CC CACIB Gjósku Ophira  (Orfí)

ISShCh Gjósku Osbourne-Tyson  (Tyson)

Gjósku Orka   (Orka)

ISShCh RW-13 Gjósku Osiris  (Kolur)

Gjósku Odinn-Orri  (Úlfur)

Sigur ganga þeirra byrjaði í febrúar 2012 þegar þau mættu á sína fyrstu sýningu í hvolpaflokki. Þar voru það bræðurnir Gjósku Osiris og Gjósku Olli sem stóðu uppúr. Gjósku Osiris var fyrsti loðni scääfer hvolpurinn sem mætti á sýningu og varð hann besti hvolpur tegundar og 2. Besti hvolpur sýningar. Gjósku Olli byrjaði einnig vel og varð besti hvolpur tegundar í snögghærðum og endaði sem 3. Besti hvolpur sýningar. Síðan þá hefur þeim bræðrum gengið frábærlega á þeim sýningum sem þeir hafa mætt á.

Í September 2013 varð Gjósku Osbourne-Tyson besti hundur tegundar og er hann eini Íslandsræktaði rakkinn til að vinna tegundina síðan elstu menn muna. Endurtók hann svo leikinn í febrúar 2014 og varð hann þá Íslenskur meistari. Á sömu sýningu varð loðni bróðir hans hann Gjósku Osiris einnig meistari og var hann þá líka fyrsti síðhærði schäferinn til að hljóta þann titil.

Gjósku Olli var ekki jafn ötull við að mæta á sýningar en hann fékk sitt fyrsta meistarastig í nóvember í fyrra varð hann þá besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni. Hann fékk sitt síðasta meistarastig núna í byrjun September 2014. Systir þeirra hún Gjósku Ophira hefur heldur ekki verið dugleg að mæta á sýningar en fékk hún sitt fyrsta meistarastig á sumarsýningu HRFÍ 2014.

Einnig hefur Huga gengið mjög vel með þessi fallegu afkvæmi sín í keppni um besta afkvæmahóp sýningar og hafa þau bæði hreppt 1. sætið og það 3.

En meistarastigin þeirra hafa raðast svona:

Gjósku Osiris - Íslenskt m.stig – 17-18.nóv 2012

Gjósku Osiris – Íslenskt m.stig – 25.maí 2013

Gjósku Osbourne-Tyson - Íslenskt m.stig – 25.maí 2013

Gjósku Osbourne-Tyson - Íslenskt m.stig, Alþjóðlegt m.stig – 7.-8. Sept 2013

Gjósku Olli - Íslenskt m.stig, Alþjóðlegt m.stig – 17. Nóv 2013

Gjósku Osbourne-Tyson - Íslenskt m.stig, Alþjóðlegt m.stig – 23.feb 2014

Gjósku Osiris - Íslenskt m.stig, Alþjóðlegt m.stig – 23.feb 2014

Gjósku Olli - Íslenskt m.stig – 22. Júní 2014

Gjósku Ophira - Íslenskt m.stig, Alþjóðlegt m.stig – 22. Júní 2014

Gjósku Olli - Íslenskt m.stig – 6.sept 2014

Picture
Gjósku Janis BIS2
Picture
Eldeyjar Hugi
Picture
Eldeyjar Hugi með besta afkvæmahóp tegundar og 3. Besta afkvæmahóp sýningar
0 Comments

Enn ein frábær sýning fyrir Gjósku Hunda

9/8/2014

0 Comments

 
September sýning HRFÍ  fór fram helgina 6.-7. september í Reiðhöllinni í Víðidal og gátum við ekki verið annað en glöð yfir frábærri framistöðu Gjósku Hundanna okkar. Fengum við 3. af 4. meistarastigum sem í boði voru og eignuðumst nýjann sýningarmeistara ISShCh Gjósku Olla. Einnig gerði gamlan okkar hún Easy sér lítið fyrir og v arð besti öldungur tegundar og varð svo 2. Besti öldungur sýningar 
Við áttum líka 3. besta ræktunarhóp tegundar með Heiðursverðlaun og Gjósku Dömu sonurinn okkar hann Hugi átti besta afkvæmahóp tegugunar og gerði sér lítið fyrir og var 3. besti afkvæmahópur dagsins.
En helstu úrslit fóru þannig.

Ungliðaflokkur rakkar
Gjósku Rósant excellent, 1. sæti

opinn flokkur rakkar
Gjósku Olli excellent, 1. sæti, meistaraefni, 2. besti rakki tegundar, Íslenskt meistarastig, vara Alþjóðlegt meistarastig

Meistaraflokkur rakkar
Gjósku Osbourne-Tyson excellent, 3. sæti


ungliðaflokkur tíku
Gjósku Rispa vg, 4. sæti

unghundaflokkur tíkur
Gjósku Ronja excellent, 2. sæti, meistaraefni


opinn flokkur tíkur
Gjósku Ophira vg
Gjósku Olga-Heiða vg


Öldungaflokkur tíkur
Easy von Santamar excellent, 1. sæti, meistaraefni, 2. besta tík tegundar, Besti öldungur tegundar, 2. Besti öldungur sýningar

Í síðhærðu hundunum voru það systkynin Gjósku Ráðhildur og Gjósku Rosi Loki sem voru bestu hundar tegundar og eru þar að leiðandi komin með boðsmiða á Crufts 2015 sem er stærsta hundasýning í heimi. Einnig áttum við Besta ræktunarhóp Tegundar með Heiðursverðlaun

Unghundaflokkur rakkar
Gjósku Rökkvi Þór excellent, 2. sæti
Gjósku Rosi Loki excellent, 1. sæti, meistaraefni, Besti rakki tegundar, Íslenskt meistarastig, Alþjóðlegt meistarastig, BOS, CRUFTS QUALIFICATIONS


Opinn flokkur rakkar
Gjósku Óli Hólm excellent, 1. sæti, meistaraefni, 2. Besti rakki tegundar, vara Alþjóðlegt meistarastig


Meistaraflokkur rakkar
Gjósku Osiris excellent, 1. sæti, meistaraefni, 3. Besti rakki tegundar

Ungliðaflokkur tíkur
Gjósku Ráðhildur excellent, 1. sæti, meistaraefni, Besta tík tegundar, Íslenskt meistarastig, BOB, CRUFTS QUALIFICATIONS


Unghundaflokkur tíkur
Gjósku Ruslana-Myrra excellent, 1. sæti, meistaraefni, 3. Besta tík tegundar, vara Alþjóðlegt meistarastig
Picture
Picture
Picture
0 Comments
    Picture

    Gjósku Ræktun
    "Alvöru schäfer"


    Eldri fréttir

    February 2023
    December 2022
    November 2022
    June 2022
    April 2022
    January 2022
    December 2021
    November 2021
    September 2021
    June 2021
    April 2021
    February 2021
    January 2021
    December 2020
    November 2020
    October 2020
    August 2020
    July 2020
    May 2020
    April 2020
    March 2020
    February 2020
    December 2019
    November 2019
    October 2019
    September 2019
    August 2019
    July 2019
    June 2019
    May 2019
    April 2019
    March 2019
    February 2019
    January 2019
    December 2018
    November 2018
    October 2018
    September 2018
    August 2018
    July 2018
    June 2018
    May 2018
    April 2018
    March 2018
    February 2018
    January 2018
    December 2017
    November 2017
    October 2017
    September 2017
    August 2017
    July 2017
    June 2017
    May 2017
    April 2017
    March 2017
    February 2017
    November 2016
    October 2016
    September 2016
    August 2016
    July 2016
    June 2016
    May 2016
    April 2016
    March 2016
    February 2016
    January 2016
    December 2015
    November 2015
    October 2015
    September 2015
    August 2015
    July 2015
    June 2015
    May 2015
    April 2015
    March 2015
    February 2015
    January 2015
    December 2014
    November 2014
    October 2014
    September 2014
    August 2014
    June 2014
    April 2014
    February 2014
    January 2014
    December 2013
    November 2013
    October 2013
    September 2013
    July 2013
    June 2013
    May 2013
    April 2013
    February 2013
    January 2013
    December 2012
    November 2012
    October 2012
    September 2012
    August 2012
    June 2012
    March 2012
    October 2011
    September 2011
    January 2011
    December 2010
    June 2010

Powered by Create your own unique website with customizable templates.
  • Forsíða
    • Hafa samband
  • Fréttir
  • Hundarnir okkar
    • Tíkurnar
    • Rakkarnir
  • Hvolpar
    • Til sölu
  • Árangur Gjóskuræktunar
  • Tegundin
    • Myndir
    • Saga tegundarinnar
    • Standard
    • Fróðleikur
  • Íslenskur fjárhundur
    • Hundarnir okkar
    • Hvolpar - Got
    • Myndir
    • Árangur sýningar og annað