Tvöföld sumarsýning HRFÍ fór fram helgina 8.-9. júní sl. og gekk Gjósku hundunum vel að vanda.
Nýji prinsinn okkar Hildar, hann Lider, kom sá og sigraði á laugardeginum. Hann bætti við sig RW-19 titili, fékk Íslenskt meistarastig, Norðurlanda meistarastig og varð svo annar í tegundarhópi 1. Drottningin hún Una Buna bætti við sig öðrum RW titili og fékk sitt síðasta Norðurlanda meistarastig og er því fyrsti schaferinn á landinu til þess að verða Norðurlanda meistari. Mylla gamla mætti í fyrsta sinn í öldungaflokk þar sem hún sló í gegn og fékk 2 öldungameistarastig og varð 4. Besti öldungur sýningar báða dagana, ásamt því að eiga besta afkvæmahóp tegundar og 2. besta afkvæmahóp sýningar báða dagana. Ungliðameistarinn hún Gjósku Valkyrja kom í fyrsta sinn í opinn flokk og kláraði íslenska meistaratitilinn sinn, fékk RW-19 titil og varð Besti hundur tegundar. Einnig áttum við besta ræktunarhóp tegundar í síðhærðum schafer báða dagana og á laugardeginum varð snögghærði hópurinn okkar besti ræktunarhópur tegundar og Besti ræktunarhópur sýningar. Leó dæturnar Ölfus Dýva Kæja og ISTRCh OB-II OB-I Forynju Aska gerðu það líka gott, en Kæja fékk heiðurshring frá dómaranum sem bað alla viðstadda um að klappa fyrir þessari flottu tík. Og hlýðni og spora meistarinn Aska varð 4. besta tík fyrri daginn og 2. besta tík seinni daginn með Íslenskt meistarastig. Helstu úrslit voru þessi: RW-19 og NKU sýning snögghærðir ISJCh Ivan von Arlett - exc, 2. sæti unghundafl. RW-19 Lider von Panoniansee - exc, 1. sæti unghundafl. meistaraefni, Besti rakki tegundar, Íslenskt meistarastig, Norðurlanda meistarastig, Reykjavík Winner 2019, Besti hundur tegundar, 2. sæti Tegundarhópi 1 ISCh Gjósku Tindur - exc, 2. sæti meistarafl. meistaraefni, 4. Besti rakki tegundar Gjósku Rispa - vg, 2. sæti opinn fl. Gjósku Vissa - g, 4. sæti opinn fl. ISTrCh OB-II OB-I Forynju Aska - exc, 1. sæti vinnuhundafl. meistaraefni, 4. Besta tík tegundar NORDUCH ISShCh RW-19 RW-18 Gjósku Una Buna - exc, 1. sæti meistarafl. meistaraefni, Besta tík tegundar, Norðurlanda meistarastig, Reykjavík Winner 2019, Besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni CIB ISCh RW-14 Gjósku Mylla - exc, 1. sæti öldungafl. meistaraefni, Öldunga meistarastig, Besti öldungur tegundar, 4. Besti öldungur sýningar, Besti afkvæmahópur tegundar, 2. Besti afkvæmahópur sýningar Gjósku ræktun - 1. sæti, Heiðursverðlaun, Besti ræktunarhópur tegundar, BESTI RÆKTUNARHÓPUR SÝNINGAR síðhærðir CIE ISShCh NLM RW-15 Gjósku Rökkvi-Þór - exc, 2. sæti meistarafl. meistaraefni, 2. Besti rakki tegundar, vara-Norðurlanda meistarastig ISJCh Gjósku www. Píla.is - exc, 1. sæti unghundafl. meistaraefni, 2. Besta tík tegundar, vara-Norðurlanda meistarastig ISJCh Gjósku Vænting - exc, 2. sæti opinn fl. ISShCh ISJCh RW-19 Gjósku Valkyrja - exc, 1. sæti opinn fl. meistaraefni, Besta tík tegundar, Íslenskt meistarastig, Norðurlanda meistarastig, Reykjavík Winner 2019, Besti hundur tegundar Gjósku ræktun - 1. sæti, Heiðursverðlaun, Besti ræktunarhópur tegundar Alþjóðleg sýning snögghærðir ISJCh Ivan von Arlett - exc, 1. sæti unghundafl. meistaraefni, 3. Besti rakki tegundar RW-19 Lider von Panoniansee - exc, 2. sæti unghundafl. Gjósku Uggi - exc, 5. sæti opinn fl. ISCh Gjósku Tindur - exc, 2. sæti meistarafl. meistaraefni Gjósku Rispa - exc, 2. sæti opinn fl. meistaraefni Gjósku Vissa - exc, 1. sæti opinn fl. meistaraefni, 3. Besta tík tegundar Ölfus Dýva Kæja - exc, 4. sæti opinn fl. ISTrCh OB-II OB-I Forynju Aska - exc, 1. sæti vinnuhundafl. meistaraefni, 2. Besta tík tegundar, Íslenskt meistarastig NORDUCH ISShCh RW-19 RW-18 Gjósku Una Buna - exc, 2. sæti meistarafl. CIB ISCh RW-14 Gjósku Mylla - exc, 1. sæti öldungafl. meistaraefni, 4. Besta tík tegundar, Öldunga meistarastig, Besti öldungur tegundar, 4. Besti öldungur sýningar, Besti afkvæmahópur tegundar, 2. Besti afkvæmahópur sýningar Gjósku ræktun - 2. sæti, Heiðursverðlaun síðhærðir CIE ISShCh NLM RW-15 Gjósku Rökkvi-Þór - exc, 2. sæti meistarafl. meistaraefni, 2. Besti rakki tegundar, vara-Alþjóðlegt meistarastig ISJCh Gjósku www. Píla.is - exc, 1. sæti unghundafl. meistaraefni, 5. Besta tík tegundar ISJCh Gjósku Vænting - exc, 4. sæti opinn fl. meistaraefni, 4. Besta tík tegundar Gjósku Snjó-Blondy - exc, 2. sæti opinn fl. meistaraefni, 2. Besta tík tegundar, Íslenskt meistarastig, vara-Alþjóðlegt meistarastig ISShCh ISJCh RW-19 Gjósku Valkyrja - exc, 1. sæti opinn fl. meistaraefni, Besta tík tegundar, Íslenskt meistarastig, Alþjóðlegt meistarastig, Besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni Gjósku ræktun - 1. sæti, Heiðursverðlaun, Besti ræktunarhópur tegundar Viljum við þakka öllum eigendum og sýnendum fyrir frábæra sýningu og ennþá betri félagsskap. Hlökkum strax til næstu sýningar sem verður helgina 24.-25. ágúst.
0 Comments
Leave a Reply. |
Gjósku Ræktun
|