Ræktunarstaðall Íslenskafjárhundssins Standard
Ræktunarmarkmið fyrir íslenskan fjárhund.FCI ræktunarmarkmið nr. 289/13.05.1999
UPPRUNI OG HEIMALAND: Ísland.
UPPHAFLEGUR ÚTGÁFUDAGUR: 24.06.1987
EIGINLEIKAR:
Á síðustu áratugum hafa vinsældir íslenska fjárhundsins aukist og þrátt fyrir að stofninn sé ekki stór, telst hann ekki lengur í útrýmingarhættu.
HEILDARSVIPUR: Íslenski fjárhundurinn er norrænn smalahundur, tæplega meðalstór með upprétt eyru og hringað skott. Séð frá hlið mynda lengd og hæð hundsins rétthyrning, en lengd frá bringubeini aftur að setbeini verður að vera meiri en hæð hans á herðakamb. Hæð framfóta á að vera jöfn hæð brjóstkassa.
Mildur, greindarlegur og oft brosleitur svipur, öruggt og fjörlegt fas er einkennandi fyrir íslenska fjárhundinn.
Hárafar er með tvennu móti, ýmist snöggt eða loðið, en ávallt þétt og hrindir vel frá sér vætu.
Útlitsmunur er greinilegur á milli hunds og tíkar.
EIGINLEIKAR OG LUND:Íslenski fjárhundurinn er fimur og þolinn smalahundur sem geltir og nýtist vel til að reka og safna saman búfénaði úr haga eða af fjalli og til fjárleita.
Vakteðli er hundinum eiginlegt og sýnir hann áberandi gestalæti er ókunna ber að garði, án þess þó að vera árásargjarn. Veiðieiginleikar eru ekki áberandi í fari hans.
Íslenski fjárhundurinn er glaður og vingjarnlegur hundur, forvitinn og fjörmikill með ljúfa lund, harðger og óragur.
HÖFUÐ:Höfuð er sterklegt og húð þéttliggjandi. Lengd höfuðkúpu er ívið meiri en lengd trýnis. Séð ofanfrá og frá hlið myndar höfuðið þríhyrning.
BOLUR: Bolur er sterklegur og í samræmi við byggingu hundsins og heildarsvip.
ÚTLIMIR:FRAMFÆTUR: Framfætur séðir framan frá eru samsíða, beinir og sterkbyggðir. Liðbeygjur eru eðlilegar.
FELDUR: Feldur er myndaður úr þeli og yfirhárum og hrindir vel frá sér vætu.
HÁRAFAR: Hárafar er með tvennu móti:
Mjög algengt er að aðalliturinn sé ljósari, jafnvel hvítur, frá hálsi undir kvið og aftur á skottenda (botnótt).
Oft fylgir kolóttur blær á trýni gulum og gráum feldlit og jafnvel svört hár og hárendar (kolhært).
Svörtum aðallit fylgja alltaf einhverjir af ofangreindum hvítum flekkjum ásamt gulum lit á fótleggjum, kinnum og yfir augum (þrílitt).
Mikið flekkótt er leyfilegt, en ekki er æskilegt að hvítt sé ríkjandi.
HÆÐ : Æskileg hæð hunda er 46 sm og tíka 42 sm.
GALLAR : Öll frávik frá ofangreindri lýsingu eru gallar sem skulu dæmdir í réttu hlutfalli við frávikið frá ræktunarmarkmiðinu.
ATHUGIÐ: Bæði eistu skulu vera af eðlilegri stærð og rétt staðsett í pungnum.
UPPRUNI OG HEIMALAND: Ísland.
UPPHAFLEGUR ÚTGÁFUDAGUR: 24.06.1987
EIGINLEIKAR:
- Smalahundur.
- Tegundahópur 5
- Spísshundur.
- Flokkur 3.
- Norrænn vakt- og smalahundur.
- Vinnuprófs er ekki krafist
Á síðustu áratugum hafa vinsældir íslenska fjárhundsins aukist og þrátt fyrir að stofninn sé ekki stór, telst hann ekki lengur í útrýmingarhættu.
HEILDARSVIPUR: Íslenski fjárhundurinn er norrænn smalahundur, tæplega meðalstór með upprétt eyru og hringað skott. Séð frá hlið mynda lengd og hæð hundsins rétthyrning, en lengd frá bringubeini aftur að setbeini verður að vera meiri en hæð hans á herðakamb. Hæð framfóta á að vera jöfn hæð brjóstkassa.
Mildur, greindarlegur og oft brosleitur svipur, öruggt og fjörlegt fas er einkennandi fyrir íslenska fjárhundinn.
Hárafar er með tvennu móti, ýmist snöggt eða loðið, en ávallt þétt og hrindir vel frá sér vætu.
Útlitsmunur er greinilegur á milli hunds og tíkar.
EIGINLEIKAR OG LUND:Íslenski fjárhundurinn er fimur og þolinn smalahundur sem geltir og nýtist vel til að reka og safna saman búfénaði úr haga eða af fjalli og til fjárleita.
Vakteðli er hundinum eiginlegt og sýnir hann áberandi gestalæti er ókunna ber að garði, án þess þó að vera árásargjarn. Veiðieiginleikar eru ekki áberandi í fari hans.
Íslenski fjárhundurinn er glaður og vingjarnlegur hundur, forvitinn og fjörmikill með ljúfa lund, harðger og óragur.
HÖFUÐ:Höfuð er sterklegt og húð þéttliggjandi. Lengd höfuðkúpu er ívið meiri en lengd trýnis. Séð ofanfrá og frá hlið myndar höfuðið þríhyrning.
- Höfuðkúpa: Höfuðkúpa er aðeins hvelfd.
- Ennisbrún: Ennisbrún er greinileg, en hvorki há né brött.
- Nef: Nef er svart en dökkbrúnt á mórauðum og leirhvítum hundum.
- Trýni: Trýni er kröftugt, fremur stutt og beint og mjókkar fram í snubbóttan þríhyrning séð bæði frá hlið og ofanfrá.
- Varir: Varir liggja þétt að kjálkum, litaraft svart en dökkbrúnt á mórauðum og leirhvítum hundum.
- Bit og tennur: Kjálkar og tennur mynda skærabit. Fulltenntur.
- Kinnar: Kinnar eru sléttar.
- Augu: Augu eru í meðallagi stór og möndlulaga, dökkbrún á lit en aðeins ljósari á mórauðum og leirhvítum hundum. Hvarmalitur er svartur en dökkbrúnn á mórauðum og leirhvítum hundum.
- Eyru: Eyru eru í meðallagi stór og upprétt og nálgast jafnarma þríhyrning að lögun. Brúnir eru sléttar en eyrnabroddar aðeins ávalir. Eyrun eru hreyfanleg og kvik og undirstrika athygli og hugarástand hundsins.
BOLUR: Bolur er sterklegur og í samræmi við byggingu hundsins og heildarsvip.
- Bak: Bak er sterklegt, vel vöðvafyllt og beint.
- Brjóstkassi: Brjóstkassi er langur, djúpur og vel hvelfdur.
- Lend: Lend er breið og vöðvafyllt .
- Spjaldhryggur: Spjaldhryggur er tiltölulega stuttur, breiður, ávalur og vel vöðvafylltur.
- Kviður: Kviður er aðeins uppdreginn.
ÚTLIMIR:FRAMFÆTUR: Framfætur séðir framan frá eru samsíða, beinir og sterkbyggðir. Liðbeygjur eru eðlilegar.
- Bógar: Herðablöð eru vel hallandi og bógar vel vöðvafylltir.
- Sporar: Sporar mega vera tvöfaldir.
- Loppur: Lögun loppunnar er aðeins ílöng, tær eru hvelfdar og liggja þétt saman. Þófar eru stinnir.
- Læri: Læri eru breið og vöðvamikil.
- Sporar: Sterklegir, tvöfaldir sporar (fjársporar), eru mjög æskilegir.
- Séu tvöfaldir sporar á fram- og afturfótum er hundurinn alspora.
- Loppur: Sjá framfætur.
FELDUR: Feldur er myndaður úr þeli og yfirhárum og hrindir vel frá sér vætu.
HÁRAFAR: Hárafar er með tvennu móti:
- Snöggt hárafar: Ytri hár eru í meðallagi löng og frekar gróf en þelið þétt og mjúkt. Hár á trýni, kolli, eyrum og framan á fótleggjum er þétt og sneggra, en lengra á hnakka, á hálsi, herðakambi, bringu og aftan á lærum. Skott er þétthært og loðið og lengd skotthára er í samræmi við hárafar hundsins.
- Langt hárafar (lubbar): Ytri hár eru lengri en í meðallagi og frekar gróf en þelið þétt og mjúkt. Hár á trýni, kolli, eyrum og framan á fótleggjum er þétt og sneggra, en mun lengra á hnakka, við eyru, á hálsi, herðakambi, bringu, aftan á framfótum (fanir) og aftan á lærum. Skott er þétthært og loðið og lengd skotthára í samræmi við hárafar hundsins.
- Aðallitir eru:
- Gulur í ýmsum blæbrigðum, allt frá ljósgulum lit til dökkrauðguls litar.
- Leirhvítur.
- Mórauður.
- Grár.
- Svartur.
Mjög algengt er að aðalliturinn sé ljósari, jafnvel hvítur, frá hálsi undir kvið og aftur á skottenda (botnótt).
Oft fylgir kolóttur blær á trýni gulum og gráum feldlit og jafnvel svört hár og hárendar (kolhært).
Svörtum aðallit fylgja alltaf einhverjir af ofangreindum hvítum flekkjum ásamt gulum lit á fótleggjum, kinnum og yfir augum (þrílitt).
Mikið flekkótt er leyfilegt, en ekki er æskilegt að hvítt sé ríkjandi.
HÆÐ : Æskileg hæð hunda er 46 sm og tíka 42 sm.
GALLAR : Öll frávik frá ofangreindri lýsingu eru gallar sem skulu dæmdir í réttu hlutfalli við frávikið frá ræktunarmarkmiðinu.
- Svört kápa (kápótt) með gulum og gráum aðallit.
- Engir sporar.
- Gul augu.
- Kringlótt, útstæð augu.
ATHUGIÐ: Bæði eistu skulu vera af eðlilegri stærð og rétt staðsett í pungnum.