Þá er sýningarárið 2019 hafið og ekki er annað hægt að segja en að Team Gjósku og Forynju hafi farið sátt frá fyrstu sýningu ársins.
Ofur prinsinn hann Welincha's Whimpy kom sá og sigraði á sýningunni aðeins rúmum 2 vikum úr einangrun. Hann stal senunni fyrst í tegundinni þar sem hann varð besti rakki tegundar með Íslenskt, Alþjóðlegt og Norðurljósa meistarastig og kláraði þar með Íslenska meistaratitilinn sinn. Þá varð hann besti hundur tegundar, Besti hundur í tegundarhópi 1 og í lok dags stóð hann uppi sem sigurvegari sýningarinnar eða BESTI HUNDUR SÝNINGAR BIS1. Gætum við ekki verið ánægðari að hafa farið útí þetta ævintýri með Hildi okkar hjá Forynju ræktun og að Leif, Ragnhild og Toril skildu treysta okkur fyrir þessum gullmola. Velgengnin einspornaðist samt ekki við Whims, en Gjósku ræktun gjörsamlega átti sýninguna. Allir okkar hundar fengu exc og sigruðu sína flokka með glæsilegar umsagnir frá hinum virta dómara Zoran Brankovic. Í síðhærðu hundunum sigraði meistarinn CIE ISSHCH NLM RW-15 Gjósku Rökkvi-Þór BESTA HUND TEGUNDAR eftir árs langa pásu frá syningum, hann hlaut bæði Alþjóðlegt og Norðurljósa meistarastig en hann hefur lokið við báða þá titla. Gjósku www. Píla.is sigraði ungliðaflokkinn og fékk sitt síðasta ungliðameistarastig, hún bíður nú staðfestingar á ungliðameistaratitlinum sínum. Píla okkar fékk einnig sitt fyrsta Íslenska meistarastig, varð 2. besta tík tegundar og BESTI UNGLIÐI TEGUNDAR. Snögghærðu hundarnir okkar gerðu okkur ekki minna stolt, en eins og áður kom fram varð Whims besti hundur tegundar, en besta tík tegundar og besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni varð ofur drottningin okkar Leó dóttirin ISShCh RW-18 Gjósku Una Buna með sitt annað Alþjóðlega meistarastig. Nú þarf hún bara að klára vinnuprófin sín til þess að geta sótt um Alþjóðlegan meistaratitil eins og foreldrar sínir. Gjósku Komma mætti líka galvösk á svæðið í annað skipti í öldungaflokk og eins og fyrri daginn þá varð hún BESTI ÖLDUNGUR TEGUNDAR með sitt annað öldungameistarastig. Gamlan gerði enn betur og varð 4. besta tík tegundar úr stórum hópi tíka. Snöggi ræktunarhópurinn okkar varð einnig besti ræktunarhópur tegundar og keppti í úrslitum seinna um daginn. Þar sýndi hópurinn allar sínar bestu hliðar og var Gjósku ræktun eins og svo oft áður valinn BESTI RÆKTUNARHÓPUR SÝNINGAR. Erum við enn í skýjunum eftir þessa æðislegu helgi og verður hún seint toppuð. Hérna kemur upptalning á úrslitum allra Gjósku og Forynju hundanna á sýningunni: síðhærðir CIE ISSHCH NLM RW-15 Gjósku Rökkvi-Þór - exc, 1. sæti meistarafl. meistaraefni, Besti rakki tegundar, Alþjóðlegt meistarastig, Norðurljósa meistarastig, BESTI HUNDUR TEGUNDAR ISJCh Gjósku www.Píla.is - exc, 1. sæti ungliðafl. meistaraefni, Ungliðameistarastig, 2. Besta tík tegundar, Íslenskt meistarastig, BESTI UNGLIÐI TEGUNDAR ISJCh Gjósku Valkyrja - exc, 1. sæti unghundafl. meistaraefni, 3. Besta tík tegundar, Alþjóðlegt meistarastig ISJCh Gjósku Vænting - exc, 1. sæti opinn fl. Gjósku ræktun - heiðursverðlaun snögghærðir ISJCh Ivan von Arlett - exc, 2. sæti ungliðafl. Forynju Aston - exc, 5. sæti opinn fl. Gjósku Uggi - exc, 1. sæti opinn fl. ISCH NUCH DKCH Welincha's Whimpy - exc, 1. sæti meistarafl. meistaraefni, Besti rakki tegundar, Íslenskt meistarastig, Alþjóðlegt meistarastig, Norðurljósa meistarastig, BESTI HUNDUR TEGUNDAR, BEST IN GROUP 1, BEST IN SHOW 1 ISShCh Gjósku Máni - exc, 1. sæti öldungafl. heiðursverðlaun, Annar besti öldungur tegundar Gjósku Thea - exc, 1. sæti opinn fl. OB-I Forynju Aska - exc, 1. sæti vinnuhundafl. CIB ISCH RW-14 Gjósku Mylla - exc, 3. sæti meistarafl. meistaraefni ISShCh RW-18 Gjósku Una Buna - exc, 1. sæti meistarafl. meistaraefni, Besta tík tegundar, Alþjóðlegt meistarastig, Norðurljósa meistarastig, BESTI HUNDUR TEGUNDAR AF GAGNSTÆÐU KYNI Gjósku Komma - exc, 1. sæti öldungafl. meistaraefni, Öldungameistarastig, 4. Besta tík tegundar, BESTI ÖLDUNGUR TEGUNDAR Gjósku ræktun - 1. sæti, heiðursverðlaun, Besti ræktunarhópur tegundar, BESTI RÆKTUNARHÓPUR SÝNINGAR Myndirnar eru frá ljósmyndara HRFÍ Ágústi Ágústssyni og Ólöfu Gyðu Risten
0 Comments
Leave a Reply. |
Gjósku Ræktun
|