Höfðinginn okkar hann Quentino von Arlett nýtur þess að hlaupa og leika sér með Gjósku Unu Bunu vinkonu sinni. Fyrstu hvolparnir undan honum á Íslandi fara að fæðast á næstu mánuðum.
0 Comments
Þá urðu gullmolarnir Gjósku Ð og Gjósku Ða 6 vikna í gær og má með sanni segja að þau þroskist alveg gríðarlega fallega. Það styttist í að þau fari á framtíðar heimilin sín og svo hlakka þau til þess að mæta á hundasýningar og í vinnu þegar að þau verða eldri.
Við ákváðum að taka saman aðeins árangur okkar í gegnum árin, en erum við virkilega stolt af ræktuninni okkar, Gjósku hundunum og öllum þeirra frábæru eigendum.
Gjósku ræktun hefur síðan að við mættum í fyrsta skipti með ræktunarhóp árið 2006 unnið 24 sinnum Besti ræktunarhópur tegundar, hvorki meira né minna. 7 sinnum höfum við átt BESTA RÆKTUNARHÓP SÝNINGAR og þar af á síðustu tvemur deildarsýningum hjá sérhæfðum Schäfer dómurum. Margsinnis höfum við raðað okkur í sæti í Besti ræktunarhópur sýningar 2.-4. sæti. Frá árunum 2013-2016 var Gjósku ræktun stigahæsta Schäfer ræktun Íslands árin 2014 og 2015 var Gjósku ræktun 3. stigahæsta ræktun HRFÍ yfir allar tegundir árið 2016 var Gjósku ræktun STIGAHÆSTA ræktun ársins hjá HRFÍ yfir allar tegundir árið 2017 var Gjósku ræktun 5. stigahæsta ræktun ársins hjá HRFÍ yfir allar tegundir Hlökkum við mikið til áframhaldandi sýningarárs 2018, en eins og stendur eftir fyrstu sýningu ársins er Gjósku ræktun stigahæsta Schäfer ræktun landsins og 2. stigahæsta ræktun HRFÍ yfir allar tegundir. RW-14 Gjósku Mylla og V SG27 SchH1 IPO3 BH AD Kkl1 Quentino von Arlett nutu sín í heiðinni í morgun. Sólin lék við okkur, en ennþá þykir okkur nú full haustlegt og vonandi fer sumarið að láta sjá sig.
Meistarinn okkar hann Juwika Fitness og yngsti Gjósku meðlimurinn,
Gjósku www.Píla.is eru bestu vinir. Þeim finnst hrikalega gaman að fá að fara tvö saman í göngu og Píla reynir að gera allt eins og Leó flotti. |
Gjósku Ræktun
|