Gjósku Nikita okkar fór í sónar í dag, er hún staðfest hvolpafull og eru hvolparnir væntanlegir um miðjan apríl.
Pabbi hvolpana er kóngurinn sjálfur CIB ISCh RW-16 RW-15 BISS SG1 Juwika Fitness en hann þarf vart að kynna. Hann er stigahæsti schäfer ársins á sýningum árið 2016 og 2017, hann er multi BOB og BOS, BEST IN SPECIALITY SHOW og hafði að sjálfsögðu unnir fjölda margar sýningar erlendis bæði í Danmörku, Þýskalandi, Hollandi og Belgíu áður en að hann kom til okkar á litla Ísland. Leó er einnig frábær vinnuhundur, en hann hefur bæði lokið hlýðni og spora prófi, en var hann m.a. heiðraður sem stigahæsti hundur yfir allar tegundur í spori 2 árið 2017. Leó hefur líka þá allra bestu ættbók af þeim rökkum sem eru hér á landi og þótt víðar væri leitað. En foreldrar hans eru frábærir ræktunar, vinnu og sýningarhundar og koma af frægustu línum í heiminum. Gjósku Nikita býr hjá vinkonu okkar en er í okkar eigu. Hún hefur lítið mætt á sýningar og nýtur þess bara að vera heimilishudur. Hún hefur þó aðeins mætt og gengið mjög vel, hún var m.a. alltaf Besti hvolpur tegundar þegar að hún var yngri og varð bæði 2. og 3. BESTI HVOLPUR SÝNINGAR. En geðslagið í henni er þó hennar helsti kostur, en Kíta eins og hún er kölluð er ofboðslega ljúf og góð tík og á ekki langt að sækja það. Kíta er undan meisturunum CIB ISCH Caty von Oxalis og hinum frábæra ræktunarhundi CIB ISCh RW-14 Welicha's Yasko. Caty náði þeim ótrúlega árangri að verða tvisvar sinum BESTI HUNDUR SÝNINGAR, BEST IN SHOW og einu sinni 4. BIS. Yasko var einn geðbesti og fallegasti hundur sem komið hefur til landsins. Hann var í eigu Kolgrímuræktunar og skyldi hann eftir sig gríðarlega djúp og stór spor í ræktun á Íslandi. Yasko sjálfur var gull fallegur hundur, en hann var stigahæsti schäfer ársins 2014, var 2. BIS ásamt því að vera nánast ósigrandi með afkvæmahópinn sinn. En segja má að Yasko hafi bætt allar þær tíkur sem hann eignaðist hvolpa með. Kíta á fyrir eitt got með meistaranum ISShCh Gjósku Rosa-Loka og úr því goti hefur einn rakki mætt á sýningar en hann er nú þegar einungis 2 ára orðinn ungliðameistari ISJCh og kominn með 2 íslensk meistarastig, 2 Alþjóðleg meistarastig og 1 norðurljósa meistarastig. Hlökkum við mikið til þessa gots, en síðasta gotið hennar Kítu var frekar þétt línuræktað inní foreldra hennar, Yasko og Caty. En ákváðum við vegna þess að við vorum ekki alveg nógu sáttar með geðslagið þar að prufa alveg aðra átt. Leó okkar er auðvitað alveg yndislegur í geðslagi eins og allir sem kynnast honum geta vottað fyrir og afkvæmin undan honum eru ekki síðri. Einnig eru Leó og Kíta alveg óskyld, en þannig paranir gerum við ekki oft, en berum þó miklar væntingar til þess núna enda topp hundar bæði með geðslag uppá 10.
0 Comments
Leave a Reply. |
Gjósku Ræktun
|