Þá er síðustu sýningu ársins lokið og endar Gjósku ræktun árið sem fyrr sem stigahæsta schäfer ræktun landsins, 4. árið í röð. Einnig gerðum við okkur lítið fyrir og stóðum uppi sem STIGAHÆSTA RÆKTUN HRFÍ árið 2016 af þeim 170 sem komast á blað. Gætum við ekki verið ánægðari með árangurinn á árinu og eigum við því frábæra fólki að þakka sem á hunda frá okkur og tekur þátt í þessu með okkur.
Síðasta sýning ársins var ekki eins afkasta mikil fyrir okkur og venjulega en þó gekk ungu Leó sonunum okkar vel. Í síðhærðu hundunum voru það ISShCh Gjósku Rosi-Loki sem endaði sem annar besti rakki tegundar. Var hann í fyrsta sæti í meistaraflokki, fékk excellent, meistaraefni og vara alþjóðlegt meistarastig. Litli ofurbangsinn hann ISJCh RW-16 Gjósku Usli vann unghundaflokkinn, fékk excellent og meisaraefni og endaði svo sem 3. besti rakki tegundar. Eftir árið, annað árið í röð, er stigahæsti síðhærði schäfer rakki landsins C.I.E ISShCh NLW-15 RW-15 Gjósku Rökkvi þór. Þá voru það snögghærðu hundarnir en þar mætti got bróðir hans Usla, Gjósku Uggi til leiks. Hann sigraði einnig unghundaflokkinn, fékk excellent og meistaraefni og gerði sér svo lítið fyrir og varð 4. besti rakki tegundar á eftir 3. meisturum. Glæsilegur árangur fyrir svo ungann og óharnaðann rakka. ISShCh Gjósku Máni varð 3. í meistaraflokki með excellent og meistaraefni og ISShCh Gjósku Osbourne-Tyson 4. ISCh RW-16 RW-15 Juwika Fitness okkar kláraði árið með því að verða 2. í meistaraflokki með excellent og meistaraefni, og 2. besti rakki tegundar með vara alþjóðlegt meistarastig. Þar með varð hann STIGAHÆSTI SCHÄFER ÁRSINS 2016. Gætum við ekki verið ánægðari með þennan unga og glæsilega rakka :)
0 Comments
Leave a Reply. |
Gjósku Ræktun
|