Fyrr á þessu ári fórum við ásamt Hildi vinkonu okkar með Forynju ræktun á siegershow í Þýskalandi og fórum við með það í huga að finna okkur rakka sem við annaðhvort myndum vilja kaupa eða fá hund undan.
Við sáum þar hund sem gjörsamlega fyllti í öll box hjá okkur en var það hinn Ítalski VA1 VA10 Dingo di Casa Mary, en við höfðum akkurat séð pabba hans á siegershow fyrir 3 árum og urðum jafn hryfnar af honum og hans afkvæmum eins og af Dingo og hans hóp. En í hópnum var einnig 1 rakki sem heillaði okkur uppúr skónum, en var það ungur hundur í ungliðaflokki aðeins 15 mánaða, Lider von Panoniansee. Við fórum því að grenslast fyrir og töluðum við góða vini okkar þau Marc og Maritu van Haut með kennel Santamar. Þau ræddu við eiganda Liders sem samþykkti að selja okkur hundinn. 2 löngum mánuðum seinna fór Rúna svo út að sækja nýja prinsinn og koma honum í pössun til vinafólks okkar í Noregi. Lider er eins og fyrr kom fram undan Ítalska rakkanum Dingo di Casa Mary sem bæði var VA í Þýskalandi og á Ítalíu í ár og hann hvorki meira né minna sigraði Ítalska Siegershow, en það er frægasta siegershow í heimi á eftir því Þýska. Hann gerði einnig garðinn frægan þegar að hann var yngri, en í ungliðaflokki var hann SG10 á Þýska siegershow, SG3 á því Ítalska og SG1 Junghundsieger í Austurríki. En er þetta ótrúlegur árangur hjá svona ungum rakka. Lider okkar er nú ekkert slor sjálfur, en hann er á þessu ári búinn að fara á 5 siegershow í 5 löndum og er bara ársgamall síðan í júní. Af þessum 5 skiptum bar Lider tvisvar sinnum sigur úr bítum, alltaf í stórum flokki fallegra sterkra hunda. Fyrsta sinn fór hann í flokk 9-12 mánaða á Króatíska siegershow, en var hann þar í 2 sæti af 5 hundum, VV2 ekki orðinn 12 mánaða gamall. Næst var ferðinni heitið til Austurríkis, en er það eitt af vinsælli siegershow-um en þar varð hann 5, SG5 af 11 hundum í hringnum. Mánuði seinna var svo stóra stundin, sjálft þýska Bundessiegerzuchtschau, en af 122 hundum, sem var töluverð aukning frá árinu áður var Lider SG61 og í FYRSTA HRING, en er Quentino von Arlett er eini hundurinn sem komið hefur til landsins sem hefur náð þeim árangri. Lider var þarna einungis 15 mánaða, en efstu hundar eru flestir um 17-18 mánaða. Eftir þýskaland fór Lider yfir til austurhluta evrópu, orðinn rúmlega 16 mánaða og fór á fyrst Slóvenska og svo Serbneska siegershow. Þar uppskar hann fyrsta sæti SG1 JUNGHUNDSIEGER á þeim báðum, en í Slóveníu voru 10 hundar í hringnum og 5 í Serbíu. Lider er eini hundurinn sem kemur til Íslands sem unnið hefur siegershow, hvað þá í 2 löndum. Fyrir utan gríðarlega góðan sýningarárangur er Lider frír A/A af mjaðma og olnbogalosi, með fullkomið geðslag og laus við alla heilsufarsbresti. Hann er einnig með frábæra ætt bók sem smell passar inní okkar ræktunarplön. Erum við svo heppnar að vera í góðu samstarfi með Forynju ræktun, en eigum við hundinn í sameiningu með henni Hildi okkar. Þetta er alveg örugglega ekki síðasti hundurinn sem við kaupum saman og horfum við björtum augum á framtíðina. Lider er væntanlegur til landsins snemma á næsta ári og gætum við ekki verið spenntari yfir því að fá litla prinsinn okkar heim.
0 Comments
Leave a Reply. |
Gjósku Ræktun
|