Þá er meistarinn okkar hún ISShCh Gjósku Ruslana-Myrra farin að gildna og eru hvolparnir hennar og IPO 1 BH AD KLL1 Jago z Wierchlesia væntanleg 6.-10. apríl n.k.
Gotið er virkilega spennandi, en Myrra og Jago eru bæði frí af mjaðma og olnbogalosi. Án allra galla eins og ofnæmi og eru bæði með eindæmum geðgóð og yndisleg. Jago kemur einnig með alveg nýjar ættir til landsins og eru þær einar þær allra eftirsóttustu í heiminum í dag, en afi hans er hinn frægi 2xVA1 Remo vom Fichtenschlag Myrra hefur staðið sig vel á sýningum hérlendis, hún er íslenskur sýningarmeistari og hefur verið á lista yfir stigahæstu tíkur landsins síðan að hún var 11 mánaða. Hún hefur einnig lokið hlýðni brons og stóð hún uppi sem 3. stigahæsti schäfer ársins í hlýðninni, stefnt er með hana í frekari vinnu eftir got. Myrra er með ofboðslega rétta byggingu, langan háls og það sem vantar í svo marga hunda hérlendis þá er hún með langann efri legg (upper arm). Einnig er hún ofboðslega falleg á litinn og þykir sérlega dökk tík. IPO 1 BH AD KLL1 Jago z Wierchlesia kom til landsins fyrir nokkrum mánuðum og er þetta hans fyrsta got hér á landi, fyrir á hann nokkur í Póllandi. Jago er enn að jafna sig eftir dvölina í einangruninni en hann styrkist með hverjum deginum sem líður og gætum við ekki verið ánægðari með Pólska prinsinn okkar. Jago er með 2. Pólsk meistarastig, 1. Ungverskt meistarastig og svo Alþjóðlegt meistarastig. Hann hafði einnig verið sýndur á mörgum sérsýningum í Póllandi með virkilega góðum árangri. Hann er með vinnuprófið IPO1 og skapgerðarmat BH, en Jago er án alls efa sá allra geðbesti rakki sem við höfum nokkurntíma kynnst. Hann er eins og Myrra, virkilega vel byggður, með langann háls og mjög langann og vel settan upper arm. Bíðum við því í eftirvæntingu eftir þessu glæsilega goti. Þeir sem hafa áhuga á að eignast hvolp undan þessum mögnuðu foreldrum geta haft samband á runahe@gmail.com eða í s. 6900907
0 Comments
Leave a Reply. |
Gjósku Ræktun
|