Stigahæsta schäferræktun ársins 2019 Stigahæsta snögghærða tík ársins 2019 Stigahæsti siðhærði rakki ársins 2019 Stigahæsti siðhærðir schäfer ársins 2019 Stigahæsti öldungur ársins 2019 Stigahæsti schäfer Hlýðni 1 ársins 2019 Stigahæsti schäfer Spor 2 ársins 2019 Árið 2019 hefur verið frábært hjá Gjósku ræktun. Við eignuðumst fullt af frábærum hvolpum og ennþá betri eigendum þeirra, ásamt því að hala inn meistarastig og nýja meistara. Þrátt fyrir gott gengi átti Gjósku ræktun rúmlega 20 færri skráningar á sýningar yfir árið en sú ræktun sem átti flestar svo sigurinn er ennþá sætari fyrir vikið.
Gjósku ræktun hlaut, 9 nýja meistaratitla á árinu, fengum 9 Íslensk meistarastig og multich Juwika Fitness dóttirin Forynju Aska fékk 1 Íslenskt meistarastig. Við fengum 7 alþjóðleg meistarastig í hús, 6 Norðurlanda meistarastig, 7 öldunga meistarastig og 1 ungliða meistarastig. Við fengum 3 Reykjavík Winner 2019 titla og áttum 7 sinnum Besta hund tegundar yfir árið, 6 sinnum áttum við Besta hund tegundar af gagnstæðu kyni, 7 sinnum áttum við Besta öldung tegundar og 2 sinnum Besta öldung tegundar af gagnstæðu kyni. Við byrjuðum árið með tropi og áttum þá BESTA HUND SÝNINGAR. Við mættum einungis einu sinni með ungliða og varð hún þá Besti ungliði tegundar. Öldungarnir okkar urðu einu sinni BESTI ÖLDUNGUR SÝNINGAR, einu sinni 3. Besti öldungur sýningar og tvisvar sinnum 4. Besti öldungur sýningar. Einnig áttum við 5 sinnum besta afkvæmahóp tegundar, tvisvar sinnum BESTA AFKVÆMAHÓP SÝNINGAR og tvisvar sinnum 2. Besta afkvæmahóp sýningar. Toppurinn er sjálfsagt sá að 8 sinnum á árinu áttum við Besta ræktunarhóp tegundar, 3. BESTA RÆKTUNARHÓP SÝNINGAR og einu sinni annan Besta ræktunarhóp sýningar. Gjósku ræktun er enn og aftur stigahæsta schäfer ræktun HRFÍ og STIGAHÆSTA SCHÄFERRÆKTUN DEILDARINNAR 2019 Í vinnu áttum við einnig gott ár, þar eignuðumst við nýjann Hlýðni 1 meistara hana ISCH ISJCH OB-1 Gjósku Væntingu, en er hún stigahæsti schäfer ársins í Hlýðni 1, Stigahæsti síðhærði schäfer ársins í spori 1 og STIGAHÆSTI SÍÐHÆRÐI SCHAFER í vinnu FRÁ UPPHAFI. C.I.B ISCh RW-16 RW-15 Juwika Fitness er einnig stigahæsti schäfer ársins í spor 2 og stigahæsti hundur ársins yfir allar tegundir í spor 2. Forynju ræktun átti góðu gengi að fagna í vinnu eins og fyrri ár. En stigahæsti Schäfer ársins í Hlýðni 2, nýr Hlýðni 2 meistari, Stigahæsti schäfer ársins í spori 3, nýr sporameistari og YNGSTI SCHAFER frá UPPHAFI til að hljóta þann titil er hin stórglæsilega OB-II OB-I IStrCh Forynju Aska. OB-II OB-I Vonziu's Asynja er stigahæsti schäfer ársins í hlýðni 3. ISJCh Ivan von Arlett er einnig stigahæsti hundur ársins og stigahæsti Schäfer ársins í hlýðni brons og þriðji stigahæsti schäfer ársins í Hlýðni 1 sem og stigahæsti schäfer ársins í spori 1, Forynju Aston er annar stigahæsti schäfer ársins í hlýðni brons og annar stigahæsti schäfer ársins í hlýðni 1. Áhugavert er að segja frá því að eingöngu mættu schäfer hundar frá Gjósku og Forynju ræktun í vinnu og eins og í fyrra er Forynju ræktun STIGAHÆSTA SCHÄFER RÆKTUN ÁRSINS Í VINNU. Takk fyrir frabært vinnu og sýningarár 2020 verður ennþá stærra og flottara !!
0 Comments
Leave a Reply. |
Gjósku Ræktun
|