Frábær fyrsta sýning ársins fór fram helgina 26.-28. febrúar og stóðu Gjósku hundarnir sig vel að vanda. Uppúr stóð meistarinn ISShCh Gjósku Osbourne-Tyson sem varð besti rakki tegundar og er núna kominn með 3 Alþjóðlega meistarastigið sitt og vantar því bara 1. Svo endaði litli unglingurinn okkar hann Gjósku Tindur sem 4. besti rakki tegundar á eftir meisturunum og fékk sitt fyrsta Íslenska meistarastig einungis 14 mánaða.
Allir Gjósku hundarnir fengu excellent og allir sem röðuðu sér í sæti fengu einnig meistaraefni, einnig fengu allir hvolparnir frá okkur heiðursverðlaun. Glæsilegur árangur það ! En hérna koma helstu úrslit frá sýningunni: snögghærðir: Gjósku Úranus The King Of Malaysia - 1. sæti, heiðursverðlaun, Besti hvolpur tegundar Gjósku Úrsúla - 1. sæti, heiðursverðlaun, Annar besti hvolpur tegundar Gjósku Uggi - 2. sæti, heiðursverðlaun Gjósku Una Buna - 1. sæti, heiðursverðlaun, Besti hvolpur tegundar, 3. Besti hvolpur sýningar Gjósku Tindur - excellent, 1. sæti ungliðafl, meistaraefni, 4. besti rakki tegundar, Íslenskt meistarastig Gjósku Máni - excellent, 1. sæti opinn fl. meistaraefni Gjósku Stakkur-Goði - excellent, 2. sæti opinn fl. meistaraefni ISShCh Gjósku Osbourne-Tyson - Excellent, 1. sæti meistarafl, meistaraefni, Besti rakki tegundar, Alþjóðlegt meistarastig, Besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni ISShCh Gjósku Olli - excellent, 4. sæti meistarafl, meistaraefni ISCh RW-15 Juwika Fitness - excellent, 2. sæti meistarafl. meistaraefni, 2. besti rakki tegundar, vara Alþjóðlegt meistarastig Eldeyjar Hugi - excellent, 1. sæti öldungafl, meistaraefni, 2. Besti öldungur tegundar, Besti afkvæmahópur tegundar, 4. Besti afkvæmahópur sýningar Gjósku Thea - excellent, 2. sæti ungliðafl, meistaraefni Gjósku Tófa Tignarlega - excellent, 1. sæti ungliðafl, meistaraefni Xkippi von Arlett - excellent opinn fl. Gjósku Mylla - excellent opinn fl. Ræktunarhópur - Heiðursverðlaun Síðhærðir Gjósku Úri - 2. sæti, heiðursverðlaun Gjósku Usli - 1. sæti, heiðursverðlaun, Besti hvolpur tegundar Gjósku Óli Hólm - excellent, 1. sæti opinn fl. meistaraefni, 3. besti rakki tegundar, Íslenskt meistarastig ISShCh Gjósku Rosi-Loki - excellent, 1. sæti meistarafl, meistaraefni, Besti rakki tegundar, Alþjóðlegt meistarastig, Besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni ISShCh RW-15 NLW-15 Gjósku Rökkvi-Þór - excellent, 2. sæti meistarafl, meistaraefni, 2. besti rakki tegundar, vara Alþjóðlegt meistarastig NLW-15 Gjósku Ráðhildur - excellent, 1. sæti opinn fl. meistaraefni, 3. besta tík tegundar Gjósku Pæja - excellent, 2. sæti opinn fl. meistaraefni ISShCh Gjósku Ruslana-Myrra - excellent, 2. sæti meistarafl, meistaraefni, 4. besta tík tegundar Ræktunarhópur - Heiðursverðlaun, Besti ræktunarhópur tegundar
0 Comments
Leave a Reply. |
Gjósku Ræktun
|