Í mars er væntanlegt got undan fallegu meisturunum ISShCh ISJCh Gjósku www.Píla. is og OB-I ISJCh Ivan von Arlett. Má með sanni segja að mikil spenna ríki á heimilu eftir þessum molum.
Píla okkar er ein sigursælasta síðhærða tík landsins síðustu ára, en hún var stigahæsti ungliði schäferdeildarinnar árið 2019, stigahæsta síðhærða schäfertík deildarinnar sem og stigahæsti síðhærði schäfer deildarinnar árið 2020. Í fyrra stóð til að fara með Pílu í vinnupróf en vegna COVID gengu þau plön ekki upp. Stefnt er á bæði spor og hlýðni með hana eftir hvolpastandið núna. Píla er frábær tík með einstakt geðslag, en allir sem kynnast henni falla algerlega fyrir persónutöfrum hennar. Píla á fyrir 1 got hjá okkur, Y-gotið, en fóru þeir hvolpar algerlega fram úr okkar björtustu vonum og getum við ekki beðið eftir að hundasýningarnar fari aftur af stað svo að þessar litlu stórstjörnur geti látið ljós sitt skína. Ivan kemur frá hinu heimsfræga Arlett kennel í Þýskalandi og er í eigu Forynju ræktunar. Ivan er stórglæsilegur rakki, hann er Íslenskur ungliðameistari, Hlýðni 1 meistari og er með 2 íslensk meistarastig. Hann hefur raðað sér á lista yfir stigahæstu rakka á sýningum HRFÍ síðan að hann kom til landsins 2018 sem og verið stigahæsti hundur landsins í hlýðniprófum. Ivan er með einstaklega góða ættbók, en báðir foreldrar hans hafa lokið hörðustu vinnuprófs kröfum hjá tegundinni og eru bæði frábærir ræktunarhundar. Hann á fyrir 1 got hjá okkur í Gjósku ræktun og 2 falleg got hjá Forynju ræktun. Hvolparnir undan honum eru einstaklega rétt byggð, með frábært geðslag og sýna öll fram á frábæra vinnueiginleika. Ivan og Píla passa einstaklega vel saman, bæði eru þau glæsilegir sýningarhundar, frí af mjaðma og olnbogalosi og bæði hafa þau vinnueiginleika tegundarinnar alveg uppá 10. Við bindum miklar vonir við væntanlegt got og hlökkum til að byggja upp þessa framtíðar hunda. Áhugasamir um hvolp úr þessu goti geta haft samband á [email protected] með öllum helstu upplýsingum og hverju fólk er að leitast eftir í hvolpi.
0 Comments
Leave a Reply. |
Gjósku Ræktun
|