Væntanlegur til landsins í sumar er nýr glæsilegur rakki BH AD IPO1 KKL1 Jago z Wierchlesia. Festum við ásamt vinafólki okkar Rut og Herði kaup á þessum glæsilega hundi, en þau eiga einnig frá okkur meistara tíkina ISShCh Gjósku Ruslönu-Myrru.
Var okkur lengi búið að langa í 2x VA1 Remo von Fichtenschlag inní okkar blóðlínur. Það er enginn annar ræktandi á landinu með hann í sínum línum og erum við alltaf að vinna að því að stækka stofninn okkar með ALVÖRU hundum sem hafa marg sannað sig um allan heim ! Remo er afi Jago og eru einnig margir aðrir topp hundar á bakvið hann s.s 2xVA 1 Vegas du haut Mansard og VA8 Ghandi von Arlett. Jago er gullfallegur og geðgóður hundur, hann er bæði með vinnupróf BH, AD og IPO ásamt því að vera með Körung 1, KKL1 sem þýðir að sérfræðingar mæla sérstaklega með honum til undaneldis. Hann hefur mætt bæði á sérsýningar í Póllandi og alltaf gengið sérstaklega vel, svo hefur hann aðeins mætt á FCI sýningar og er með 2 Pólsk meistarastig og 1 Ungverskt meistarastig. Hann er líka með 1 Alþjóðlegt stig, svo við erum virkilega spenntar fyrir þessum glæsilega prins! Jago verður virkilega skemtileg viðbót við flóruna hér á landi þar sem að hann kemur með nýtt en virkilega gott blóð til landsins.
0 Comments
Leave a Reply. |
Gjósku Ræktun
|